Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nú þurfa allir að leggjast á eitt til að tryggja framtíð handboltans í bænum

12. maí 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Staða handboltans á Akureyri: fundir þriðjud. og fimmtud.

Eins og við er að búast eru ýmsar spurningar uppi varðandi stöðu handboltamála á Akureyri þessa dagana, ekki síst með tilliti til frétta af miklum erfiðleikum varðandi fjárhagsstöðu handboltans. Boðað hefur verið til tveggja almennra funda í vikunni til að ræða þessi mál.

Fyrri fundurinn er hádegisfundur í KA heimilinu þriðjudaginn 13. maí og stendur hann frá klukkan 12:00 til 13:00. Umræðuefni fundarins er Staða handboltans á Akureyri og gefst fundarmönnum færi á að gæða sér á súpu á vægu verði.

Þá hefur Akureyri Handboltafélag ásamt íþróttafélögunum Þór og KA boðað til fundar fimmtudaginn 15. maí næstkomandi klukkan 18:00 í teríu Íþróttahallarinnar. Yfirskrift þess fundar er Handboltafélag Akureyrar Staða - Framtíð

Við hvetjum allt áhugafólk um handknattleik til að fjölmenna á fundina og leggja sitt af mörkum til að tryggja áframhaldandi tilveru handknattleiks í bænum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson