Jónatan, krafmikill að vanda og dreif sína menn áfram
| | 31. ágúst 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarReykjavík Open: Akureyri vann leikinn um 3. sætiðReykjavík Open mótinu lauk í gær og léku okkar menn úrslitaleik gegn Stjörnunni um 3. sætið í mótinu. Liðið kom mjög vel stemmt í leikinn, vörnin fantagóð og Hafþór varði eins og berserkur. Stjarnan átti aldrei séns í baráttuglatt lið Akureyrar sem leiddi í hálfleik með sex mörkum, 14-8.
Sami kraftur var í liðinu í síðari hálfleik og fengu allir leikmenn í hópnum að spreyta sig. Lokatölur urðu fjögurra marka sigur 28-24 og bronsverðlaun í mótinu því staðreynd. Hafþór Einarsson varði frábærlega allan leikinn en markaskorunin dreifðist sem hér segir: Jónatan 7, Oddur 6, Andri Snær 5, Árni 4, Nikolaj 3, Heiðar 2 og Rúnar 1.
Í heildina eru menn bara mjög kátir með gengi liðsins, en liðið tapaði einungis einum leik í mótinu, gegn HK sem stóð að lokum uppi sem sigurvegari mótsins eftir öruggan sigur á Fram 26-21 í úrslitaleik mótsins. |