Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Að sjálfsögðu förum við í alla leiki með því hugarfari að vinna

12. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Morgunblaðið í gær: - Ekki verið nein heppni hjá okkur

Í dag birtum við síðasta hlutann úr umfjöllun Ívars Benediktssonar úr Morgunblaðinu í gær. Hér ræðir hann við Rúnar Sigtryggsson um velgengni liðsins o.fl.

Ekki verið nein heppni hjá okkur

Að sjálfsögðu förum við í alla leiki með því hugarfari að vinna. En vissulega verður ekki á móti því mælt að heilt yfir hefur það komið mér aðeins á óvart hversu vel okkur hefur gengið, segir Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, spurður um hvort velgengni liðsins hafi komið honum á óvart.

Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu þéttir við erum sem lið og hvað við höfum náð að halda haus lengi, ekki farið út í neina vitleysu. Það hefur ekki verið neinn heppnisstimpill á sigrum okkar í deildinni. Liðið er mjög skipulagt og leikmenn eru þolinmóðir. Við lesum leikina betur en áður og yfirhöfuð hefur ekki verið neinn asi í sóknarleiknum hjá okkur. Við megum ekki gleyma okkur og missa einbeitinguna því það er ennþá mikið eftir af mótinu, segir Rúnar.

Seldu 150 ársmiða
Til marks um áhugann og stemninguna í kringum Akureyrarliðið í vetur og þá breytingu sem átt hefur sér stað til batnaðar má nefna að félagið seldi í haust 150 ársmiða á heimaleiki liðsins í N1-deildinni. Það er ótrúlegt stökk frá vetrinum á undan þegar tíu ársmiðar seldust.
iben@mbl.is
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson