Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hörður Fannar kunni vel við sig á línunni í Víkinni
19. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Öruggur sigur Akureyrar á Víkingum
Akureyri er komið á sigurbraut á ný með glæsilegum sigri á Víkingum á heimavelli þeirra síðarnefndu í kvöld. Liðið sýndi allar sínar bestu hliðar í dag þar sem sterk liðsheild, barátta og leikgleði skilaði dýrmætum stigum í hús.
Það sást langar leiðir að leikmenn Akureyrar komu einbeittir til leiks, vörnin var frábær, Hafþór öflugur í markinu og skynsemin allsráðandi í sóknarleiknum sem skilaði fínum færum, vítaköstum og mörkum.
Akureyri komst fyrst yfir í 2-3 og hafði örugg tök á leiknum eftir það, í stöðunni 3-4 skellti Hafþór í lás og munurinn jókst hröðum skrefum. Mestur varð munurinn sjö mörk í fyrri hálfleik 6-13 en Víkingar minnkuðu muninn í 8-13 með tveim síðustu mörkum hálfleiksins.
Það var greinilega ákveðið í hálfleik að ekkert yrði slakað á því að seinni hálfleikur hófst með látum, Akureyrarsóknin skilaði hverju markinu á fætur öðru meðan ekkert gekk hjá Víkingum, Hafþór hafði þá algjörlega í vasanum og eftir þrettán mínútna leik var munurinn kominn í tíu mörk 10-20 og allur vindur úr Víkingum. Hörður Fannar var hvað eftir annað dauðafrír á línunni og var vel mataður af þeim Jónatan og Árna og skilaði hverjum boltanum á fætur öðrum í netið.
Rúnar tók virkan þátt í sóknarleiknum lengst af og skoraði algjört draumamark lengst utan af velli eftir langa sókn. Það má reyndar segja að hafi verið aðalsmerki liðsins í þessum leik að sóknarleikurinn var yfirvegaður og árangursríkur. Munurinn hélst áfram í kringum tíu mörkin en síðustu mínútur leiksins gerðust menn full kærulausir og skoruðu ekki mark síðustu átta mínútur leiksins á meðan Víkingar gengu á lagið og söxuðu á forskotið með síðustu fjórum mörkum leiksins sem endaði með öruggum sigri 20-25.
Í dag kannaðist maður við stemminguna sem var í liðinu fyrir áramótin enda var það fyrst og fremst frábær liðsheild sem skóp þennan sigur þar sem menn börðust og peppuðu hvern annan upp, jafnt innan vallar sem og á bekknum. Það er ekki auðvelt að taka neinn sérstaklega útúr en Hörður Fannar átti sannkallaðan stórleik á línunni og réðu Víkingar ekkert við hann.
Hafþór stóð í markinu allan tímann og var frábær, 19 skot varin, þar af eitt vítakast og skoraði að auki eitt mark.
Mörkin dreifðust sem hér segir: Jónatan 9 (5 víti), Hörður 6, Oddur 4, Andri og Rúnar 2 hvor, Hafþór og Árni 1 mark hvor.
Það er fyrir mestu að liðið er búið að finna sigurstemminguna aftur og núgetum við látið okkur hlakka til næsta leiks sem verður þó ekki fyrr en 4. mars þegar HK kemur í heimsókn í Íþróttahöllina.
Leikurinn var í beinni lýsingu og þar er hægt að
sjá ítarlega gang leiksins
.
Eftir leiki kvöldsins er staðan í N1-deildinni þannig
Nr.
Félag
Leikir
U
J
T
Mörk
Hlutfall
Stig
-
1.
Valur
15
9
3
3
415 : 358
57
21
:
9
2.
Haukar
14
10
0
4
408 : 352
56
20
:
8
3.
Fram
16
8
3
5
445 : 439
6
19
:
13
4.
FH
16
8
2
6
478 : 470
8
18
:
14
5.
HK
16
7
3
6
426 : 434
-8
17
:
15
6.
Akureyri
16
7
1
8
412 : 437
-25
15
:
17
7.
Stjarnan
16
3
3
10
393 : 434
-41
9
:
23
8.
Víkingur
15
2
1
12
375 : 428
-53
5
:
25
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson