Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Andri var öflugur síðast þegar liðin mættust í Víkinni

19. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Víkingur - Akureyri í beinni textalýsingu

Leikur dagsins er á útivelli gegn Víkingum sem hafa verið á góðri siglingu upp á síðkastið. Skemmst er að minnast þess að þeir skelltu Akureyri hér í Höllinni síðast þegar liðin mættust. Víkingar héldu áfram og unnu HK sannfærandi 27-24 í næsta leik en biðu reyndar naumlega lægri hlut fyrir Stjörnunni 20-19 í síðasta leik sínum.

Það er því deginum ljósara að Akureyri á erfitt verk fyrir höndum í dag og víst að það hefur enginn efni á því að mæta í Víkina nema með hausinn í lagi ef ekki á illa að fara. Það er orðið ótrúlega langt síðan Akureyrarliðið landaði sigri og treystum við því að strákarnir leggi allt í sölurnar í þessum leik. Leikurinn hefst að vanda klukkan 19:30 og við reiknum með því að verða með beina lýsingu á honum hér á síðunni fyrir þá stuðningsmenn sem heima sitja. Við treystum á það að netsambandið í Víkinni verði í lagi svo við lendum ekki í sama klúðri og í Kaplakrikanum fyrir viku síðan þar sem allt var bilað.

Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:30 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson