Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Barnakarlarnir í Akureyrarliðinu munu berjast eins og ljón gegn Haukunum





13. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins klukkan 18:00: Akureyri - Haukar barátta á öllum vígstöðvum

Það verður boðið upp á það besta í íslenskum handbolta á fjölum Íþróttahallarinnar í dag þegar Akureyri tekur á móti toppliði Hauka í næstsíðasta heimaleik okkar í N1 deildinni að þessu sinni. Áður en lengra er haldið er rétt að ítreka það enn einu sinni að leikurinn hefst klukkan 18:00 en sú meinlega villa er í auglýsingu í Vikudegi sem kom út í gær að leikurinn sé klukkan 19:00.

Leikmenn Akureyrar hafa sigrað öll lið N1 deildarinnar á þessu leiktímabili nema Hauka og því er það ekkert launungarmál að það er takmark leikmanna að bæta úr því í dag. Haukarnir hafa farið á kostum upp á síðkastið og ekki tapað deildarleik síðan í byrjun nóvember þannig að það ljóst er að þeir eru með gríðarlega sterkt lið.

Eftir því sem okkar heimildir herma þá hafa aðeins tvö lið í heiminum unnið Hauka á þessu ári en það eru stórliðin Nordhorn og Akureyri Handboltafélag. Nordhorn vann Haukana í Evrópukeppni félagsliða og Akureyri vann þá í æfingaleik um miðjan janúar þannig að þeir eru augljóslega ekki ósigrandi.

Það þarf vart að kynna leikmenn Hauka fyrir handboltaáhugamönnum en í vetur hefur skyttan unga Sigurbergur Sveinsson verið illviðráðanlegur og er langmarkhæstur þeirra með 119 mörk í deildinni þrátt fyrir að hafa tekið út eins leiks bann.

Línumaðurinn eitilharði Kári Kristján Kristjánsson er með 66 mörk og fast á hæla hans Andri Stefan Guðrúnarson með 62 mörk. Þar á eftir koma hornamennirnir Elías Már Halldórsson og Einar Örn Jónsson með 55 og 52 mörk og hinn eitraði Freyr Brynjarsson með 48 mörk.


Andri Snær stöðvar Frey Brynjarsson leikmann Hauka í leiknum í nóvember

Raunar er hægt að telja þannig áfram, Gísli Jón, Gunnar Berg, Arnar Pétursson og Arnar Jón eru allt jaxlar sem aldrei má líta af og því ljóst að Haukaliðið er ekki árennilegt.

Markverðir Haukanna eru ekki af lakari sortinni, þeir Birkir Ívar Guðmundsson sem hefur farið á kostum í síðustu leikjum og Gísli Guðmundsson sem gerir ekki síður tilkall til byrjunarsætis í liðinu.

Akureyri stillir að sjálfsögðu upp sínu sterkasta liði gegn Haukunum en þess ber þó að geta að Rúnar Sigtryggsson verður fjarri góðu gamni þar sem hann tekur út leikbann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í síðasta leik. Hörður Fannar kemur inn aftur eftir örstutt fæðingarorlof.

Þegar liðin mættust í höllinni í nóvember mættu vel yfir 1.000 áhorfendur og væri ekki amalegt að fá annan eins fjölda í dag til að hjálpa strákunum yfir hjallann en stuðningur áhorfenda skiptir gríðarlegu máli eins og sást berlega á lokamínútum síðasta heimaleiks þegar liðið vann upp þriggja marka forskot HK og gott betur þannig að í lokin mátti HK þakka fyrir að ná jafntefli.

Leikurinn skiptir bæði lið miklu máli, Haukar eru í baráttu við Val um deildarmeistaratitilinn og Akureyri þarf sigur til að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninni og þarf líka tvö stig til að hrista Stjörnuna endanlega af sér í neðri hlutanum.

Þess vegna þurfa allir að leggjast á árarnar og drífa fólk með sér á leikinn og enn einu sinni að minna á óvenjulegan leiktíma klukkan 18:00 því við vitum að margir reikna með því að leikurinn sé á hefðbundnum tíma, það er óþarfi að láta þá grípa í tómt, látum fréttina berast um bæinn – Áfram Akureyri!

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson