Anton, Heiddi og Oddur valdið í landsliðshópinn
| | 15. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarÞrír leikmenn Akureyrar í æfingahópi U-21 árs liðsinsHSÍ hefur valið æfingahóp U-21 árs landsliðsins en hópurinn verður við æfingar dagana 18. – 22. mars. Akureyri á þrjá leikmenn í hópnum þá Anton Rúnarsson, Heiðar Þór Aðalsteinsson og Odd Gretarsson. Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju með valið og sendum baráttukveðjur.
Í hópnum eru auk þeirra tveir fyrrum leikmenn Akureyrar, þeir Sveinbjörn Pétursson markvörður og Ásbjörn Friðriksson sem leika í vetur með HK og FH. Þjálfari liðsins er að vanda Heimir Ríkharðsson sem er jafnframt þjálfari 2. flokks Vals svo og aðstoðarþjálfari meistaraflokks Vals. Annars lítur æfingahópurinn þannig út:
Markmenn: Aron Rafn Eðvarðsson, Haukar Ingvar Kr. Guðmundsson, Valur Sveinbjörn Pétursson, HK Birkir Bragason, Selfoss
Aðrir Leikmenn: Anton Rúnarsson, Akureyri Ásbjörn Friðriksson, FH Guðmundur Árni Ólafsson, Selfoss Heiðar Þór Aðalsteinsson. Akureyri Hjálmar Þór Árnason, Víkingur Hörður Másson. Selfoss Jóhann Karl Reynisson, Fram Oddur Gretarsson. Akureyri Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK Ólafur Gústafsson, FH Ragnar Jóhannsson, Selfoss Sigurður Ágústsson, FH Sigurjón Björnsson, ÍR Þórður Rafn Guðmundsson, Haukar Þrándur Gíslason, Afturelding Þröstur Bjarkarson, HSG Mülheim-Kärlich-Bassenheim Þröstur Þráinsson, Víkingur. |