Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur stendur í stórræðum eina ferðina enn með U-19 ára landsliðinu

22. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-19 ára liðið byrjar HM með tveim sigrum

Íslenska U-19 lið karla tekur nú þátt í heimsmeistaramótinu sem að þessu sinni fer fram í Túnis. Í forkeppninni leikur liðið í B-riðli ásamt Púertó Ríkó, Brasilíu, Svíþjóð og Frakklandi. Liðið hefur leikið tvo leiki, fyrst unnu strákarnir sigur á Púertó Ríkó, 35-23 (16-11 í hálfleik) og í gær sigruðu þeir Frakka 29-24 eftir að staðan var jöfn í hálfleik 14-14.

Næsti leikur liðsins er á fimmtudaginn þegar þeir mæta Brasilíu og loks mæta þeir Svíum laugardaginn 25 júlí en báðir leikirnir eru klukkan 19:00 að staðartíma.

Okkar maður í liðinu, Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk í leiknum gegn Púertó Ríkó en kom ekki við sögu í leiknum gegn Frökkum.

Hægt er að fylgjast með mótinu á heimasíðu mótsins og þar er m.a. annars ítarleg tölfræði og rakinn gangur hvers leiks.

Smelltu hér til að komast á síðu mótsins.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson