Geir lét finna fyrir sér í dag!
| | 24. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarGeir skoraði 8 mörk gegn Finnum í dagÍslenska U-17 ára liðið hafnaði í 7. sæti á Ólympíuleikum æskunnar en strákarnir unnu í morgun heimamenn Finna 27-30 í leik um sætið. Geir Guðmundsson var atkvæðamestur Íslendinga í leiknum og skoraði 8 mörk en Guðmundur og Ásgeir voru ekki í hópi markaskorara að þessu sinni.
Mörk Íslands skoruðu: Geir 8, Arnar Daði Arnarsson 7, Pétur Júníusson 5, Arnar Birkir Hálfdánsson, Jón Bjarki Oddsson og Viggó Kristjánsson 3 mörk hver og loks Þráinn Jónsson 1 mark.
Það verða Danir og Frakkar sem leika til úrslita í mótinu seinna í dag. |