Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Vonandi kemur Oddur sterkur inn gegn Svíum á laugardaginn

23. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-19 ára liðið sigraði þriðja leikinn í dag

Íslenska U-19 liðið heldur áfram sigurgöngu sinni á heimsmeistaramótinu í Túnis. Í dag sigruðu íslensku strákarnir lið Brasilíu 37-31 eftir að hafa leitt 19-15 í hálfleik. Í upphafi var jafnt á öllum tölum upp í 4-4 en eftir það sigu Íslendingar fram úr og unnu öruggan sigur eins og áður segir.

Oddur var ekki í hóp í dag en óstaðfestar fréttir herma að hann hafi orðið fyrir einhverju hnjaski í fyrsta leiknum.

Næsti leikur liðsins er á laugardaginn og þá verður leikið gegn Svíum. Íslendingar eru efstir í riðlinum með 6 stig eftir 3 leiki, Svíar eru með 4 stig eftir 2 leiki en þeir spila gegn Frökkum á morgun og geta þar með náð Íslendingum að stigum og þá verður leikurinn á laugardaginn hreinn úrslitaleikur í riðlinum.

Leikur Íslendinga og Svía hefst væntanlega klukkan 18:00 að íslenskum tíma og er hægt að fylgjast með gangi leiksins þegar þar að kemur á heimasíðu mótsins og smella þar á tengilinn Live Score en hann sýnir stöðuna í öllum leikjum dagsins og uppfærist sjálfkrafa á klukkutíma fresti.

Smelltu hér til að komast á síðu mótsins.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson