Nóg að gera hjá yngri landsliðum Íslands þessa dagana
| | 28. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarOddur á ferð og flugi - næsta verkefni með U-21 ára liðinuÞað er nóg að gera hjá Oddi Gretarssyni í sumar. Þessa dagana er hann að leika með U-19 ára landsliðinu í Túnis þar sem liðið er komið í 4-liða úrslit. Þar á liðið eftir að leika tvo leiki, fyrst gegn heimamönnum í Túnis um það hvort liðið fær rétt til að leika um 1. eða 3. sætið en úrslitaleikirnir verða föstudaginn 31. júlí. Oddur fær ekki langa hvíld þar á eftir því að hann var sömuleiðis valinn í U-21 árs liðið sem heldur til Egyptalands á mánudaginn til að keppa í lokakeppni heimsmeistaramótsins. Ísland er þar í riðli með Argentínu, Egyptalandi, Qatar, Kuwait og Þýskalandi.
Leikjaplan liðsins er eftirfarandi: Miðvikudagur 5. ágúst kl. 17:30 Egyptaland - Ísland Föstudagur 7. ágúst kl. 15:30 Ísland - Kuwait Laugardagur 8. ágúst kl. 13:30 Þýskaland - Ísland Mánudagur 10. ágúst kl. 15:30 Ísland - Argentína Þriðjudagur 11. ágúst kl. 13:30 Qatar – Ísland
Milliriðlar hefjast svo fimmtudaginn 13. ágúst.
Þjálfari íslenska liðsins er Heimir Ríkarðsson.
Hópurinn sem heldur að utan er eftirfarandi: Markmenn: Aron Rafn Eðvarsson, Haukar Ingvar Kristinn Guðmundsson, Valur Sveinbjörn Pétursson, HK
Aðrir leikmenn: Andri Heimir Friðriksson, ÍR Anton Rúnarsson, Valur Ásbjörn Friðriksson, FH Bjarki Már Gunnarsson, HK Bjarni Aron Þórðarson, Stjarnan Guðmundur Árni Ólafsson, Haukar Hjálmar Þór Arnarson, Víkingur Oddur Gretarsson, Akureyri Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK Ólafur Gústafsson, FH Orri Freyr Gíslason, Valur Rúnar Kárason, Fuchse Berlin Þröstur Þráinsson, Víkingur. |