Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur setti sjö mörk í dag í glæsilegum sigri Íslands

29. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-19 spilar um heimsmeistaratitilinn í Túnis

Íslenska U19 ára liðið gerði sér lítið fyrir og sigraði Túnis 33-31 í æsispennandi leik núna í kvöld og tryggði sér þar með réttinn til að spila um Heimsmeistaratitilinn gegn Króötum sem sigruðu Svía 28-25 á sama tíma.

Ísland komst í 3-1 í byrjun leiks en þá tóku Túnisar mikinn sprett og komust í 3-7 og héldu lengi fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik. Íslenska liðinu tókst þó að minnka muninn niður í eitt mark fyrir hálfleik en Túnis leiddi þá 14-15.

Seinni hálfleikur var æsispennandi, Túnis með frumkvæðið framan af en liðin skiptust á að hafa forystuna seinni hlutann. Á lokaandartökum leiksins náði Ísland að síga fram úr 33-30 en Túnis skoraði síðasta mark leiksins og lokatölur því 33-31 fyrir Ísland.

Þar með er Ísland komið í úrslitaleikinn sem verður leikinn 31. júlí klukkan 19:30 að Íslenskum tíma en Túnis og Svíþjóð leika um 3. sætið og hefst sá leikur klukkan 17:30. Hægt verður að fylgjast með gangi leiksins á heimasíðu mótsins.

Mörk Íslands: Ólafur Guðmundsson 10, Oddur Gretarsson 7, Aron Pálmason 5, Heimir Óli Heimisson, Guðmundur Árni Ólafsson og Stefán Sigurmarsson 3 mörk hver og Örn Ingi Bjarkason 2 mörk.
Arnór Stefánsson varði 9 skot í íslenska markinu.

Hér er hægt að skoða ítarlega leikskýrslu með tölfræði leiksins.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson