Guðmundur Hólmar átti magnaðan leik í kvöld
| | 24. september 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarTap gegn Haukum í hörkuspennandi leikÞað var hörkuleikur í kvöld á milli Akureyrar og Hauka á fyrsta degi Hafnarfjarðarmótsins. Leikurinn var allan tímann jafn og spennandi, Akureyri þó með frumkvæðið lengst af í fyrri hálfleik en Haukar skoruðu síðasta mark hálfleiksins og leiddu með einu marki í hálfleik 14-13.
Í fyrri hálfleik fór Guðmundur Hólmar Helgason mikinn og skoraði fimm flott mörk og var að spila virkilega vel. Hafþór stóð í markinu, var seinn í gang en var mjög öflugur í seinni hlutanum, varði átta skot, þar af eitt víti.
Í seinni hálfleik hélt sama spennan áfram, liðin skiptust á að hafa forystuna en Haukarnir tryggðu sér þriggja marka sigur með því að skora tvö síðustu mörk leiksins.
Heiðar Þór var öflugur í vinstra horninu og skoraði þrjú glæsimörk, Hörður Flóki stóð í markinu seinni hálfleikinn og varði sjö skot.
Mörk Akureyrar skoruðu: Oddur Gretarsson 6 (2 úr vítum), Guðmundur Hólmar Helgason 5, Guðlaugur Arnarsson og Heiðar Þór Aðalsteinsson 3 hvor, Heimir Árnason og Hörður Fannar Sigþórsson 2 mörk hvor, Árni Sigtryggsson, Bjarni Jónasson og Geir Guðmundsson 1 mark hver.
Í fyrri leik dagsins mættust FH og Valur þar sem Valur sigraði með einu marki.
Á morgun, föstudag leikur Akureyri gegn FH og hefst leikurinn klukkan 20:00 og verður sýndur á sporttv.is. |