Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Bergvin og félagar ætla örugglega að berjast í bikarnum
15. janúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur Akureyrar í stórræðum á laugardag
Á laugardaginn leika strákarnir í 2. flokki gríðarlega mikilvægan leik þegar þeir taka á móti HK úr Kópavogi. Leikurinn er liður í bikarkeppninni en þessi tvö lið, HK og Akureyri hafa einmitt leikið dramatíska úrslitaleiki í bikarnum síðastliðin tvö ár. Í bæði skiptin fór HK með sigur af hólmi þannig að nú fá strákarnir kærkomið tækifæri til að kvitta fyrir síðustu tvö ár.
Leikurinn verður í Íþróttahöllinni á laugardaginn og hefst klukkan 13:00.
Þessi lið mættust einmitt í Höllinni þann 27. október og þar fór Akureyri með öruggan sigur, 38-27 en sá leikur var liðu í Íslandsmótinu.
Það þarf ekki að nefna það að leikurinn á laugardaginn er gríðarlega mikilvægur og ekkert nema sigur kemur strákunum á kunnuglegar slóðir, þ.e.a.s. í úrslitaleik bikarkeppninnar í vor.
Lið Akureyrar hefur góða forystu í Íslandsmótinu, situr þar á toppnum með 11 stig eftir 6 leiki en HK situr í 6. sæti með 4 stig eftir 7 leiki. En bikarkeppnin er alltaf bikar og þar hefur HK liðið kunnað vel við sig á síðustu ár.
Við hvetjum alla til að koma í Íþróttahöllina á laugardaginn og hvetja strákana til dáða.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson