Geir lék vel gegn Gróttu í dag
| | 23. janúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarSannfćrandi sigur á Gróttu í fyrsta leik EiđsmótsinsEiđsmótiđ í Hafnarfirđi hófst í dag, fyrsti leikur mótsins var á milli gestgjafanna í Haukum gegn Fram og lyktađi međ eins marks sigri Hauka 29-28 eftir mikinn darrađardans á lokamínútunum. Nćsti leikur mótsins var á milli Akureyrar og Gróttu.
Í liđ Akureyrar vantađi Heimi Árnason, Hrein Hauksson og Guđmund Hólmar Helgason. Strákarnir létu ţađ ekkert á sig fá og tóku leikinn fljótlega í sínar hendur. Um miđjan fyrri hálfleik var forysta ţeirra orđin fjögur mörk, 9-5 og hélst sá munur ađ mestu nćstu mínútur. Fimm mörk skildu liđin í hálfleik, 18-13.
Liđiđ spilađi fínan bolta, vörnin góđ og sóknarleikurinn gekk smurt. Hörđur Fannar var öruggur á línunni og skorađi fimm mörk í hálfleiknum en Jónatan matađi hann vel. Hafţór átti fínan leik í markinu og tók níu skot.
Yfirburđi Akureyrar voru síđan algerir í seinni hálfleik og munurinn fór strax í átta mörk og hélst á bilinu 6-7 mörk en undir lokin gaf Akureyri í og lauk leiknum međ tíu marka sigri, 34-24.
Hörđur Flóki stóđ í markinu í seinni hálfleik og varđi vel, tók 10 bolta. Allir í hópnum tóku virkan ţátt í leiknum og skoruđu allir.
Mörkin sem hér segir: Geir Guđmundsson 7, Hörđur Fannar Sigţórsson 6, Árni Sigtryggsson 5, Oddur Gretarsson 5 (4 víti), Andri Snćr Stefánsson 4 (2 víti), Guđlaugur Arnarsson 2, Jónatan Magnússon 2, Bjarni Jónasson, Brynjar Hreinsson og Halldór Logi Árnason 1 mark hver.
Strákarnir mćta svo Fram klukkan 16:00 í dag. |