Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Silfurmaðurinn Oddur Gretarsson sýnir að hann er liðtækur í eldhúsinu
26. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Matarkrókurinn - Oddur Gretarsson
Hornamaðurinn knái, Oddur Gretarsson tók áskorun Harðar Fannars Sigþórssonar í Vikudegi og er hér mættur með uppskriftir í matarkrókinn. „Hér er frábær uppskrift á kvöldmáltíð þegar þú vilt gera vel við þig og þína t.d. eftir sigurleik eða bara eftir erfiðan vinnudag“, segir Oddur.
Svínasnitzel með sveppum og paprikku
4 stk. svínastnitzel
Salt og pipar
Paprikuduft
Olía
1 rauð paprika (stór)
250 g sveppir
1 msk. smjör
Ca. 1 msk. sítrónusafi
Sósa
1/2 teningur svínakjötskraftur (Knorr)
1 dl vatn
2,5 dl rjómi
Sítrónusafi
Salt og pipar
Aðferð:
Strá salti, pipar og paprikudufti á snitzelið. Hita olíu á pönnu og steikja snitzelið í ca. 8 mínútur á vægum hita, snúa því öðru hvoru við á pönnunni.
Skerið sveppina niður í sneiðar og paprikuna í bita og steikið í smjöri. Kryddið með salti, pipar og bætið sítrónusafanum út í. Steikið í nokkrar mínútur.
Sósan
Hellið vatninu á pönnuna og bætið svínakjötskraftinum út í, leysið upp og sjóðið í augnablik. Rjóminn settur út í og látinn sjóða í eina mínútu. Salti, pipar og sítrónusafa bætt út í eftir smekk.
Ef sósan er þunn má þykkja hana með sósujafnara.
Snitzelið sett í eldfast mót, sósunni hellt yfir og papriku/sveppum þar ofan á. Borið fram með kartöflum og salati að eigin ósk.
Hið fullkomna skyrboozt a la Oddur
(Fyrir 4 manneskjur)
500 g vanilluskyr
1 banani
1 pera
1 epli
Frosin jarðarber
1,5 dl appelsínusafi
Örlítið af sódavatni
Ísklakar
Eplið og peran eru skorin í hæfilega smáa bita og tekinn kjarninn úr þeim (einnig má flysja þau en persónulega finnst mér best að hafa flusið á). Þessu er öllu skellt í blandara og beðið í ca. mínútu. Best er að setja handfylli af frosnu jarðarberjunum og klökunum.
Borið fram í glerglösum og gaman er að setja sogrör ofan í. Tilvalinn eftirréttur sem hentar flestum og er mjög hollur og bragðgóður.
Ekta frönsk súkkulaðikaka
Hnausþykk, full af súkkulaði og fljótleg
450 g Síríus 56% súkkulaði
250 g smjör
6 egg
100 g hveiti
Hitið ofninn í 220°C. Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti við hægan hita. Þeytið eggin þar til þau verða létt og ljós og hrærið súkkulaðiblönduna vel saman við.
Sigtið hveitið út í og blandið varlega saman við með sleikju þar til deigið er orðið slétt og samfellt. Smyrjið pappír á botninn á því. Hellið deiginu í formið og bakið í 5 mínútur. Setjið þá álpappír yfir formið og bakið áfram í 10-12 mínútur.
Leyfið kökunni að kólna í forminu í að minnsta kosti 2 klst. áður en hún er borin fram með rjóma.
Þar með hefur Oddur heldur betur og uppfyllt sína áskorun og lýkur henni með eftirfarandi: „Ég ætla að skora á vin minn, föðurinn, hundaeigandann og markmanninn spræka Siguróla Magna Sigurðsson að koma með uppskriftir í næsta matarkrók.“
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson