Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Oddur var traustur að vanda
25. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Valsmenn höndluðu pressuna í Höllinni
Ekki tókst Akureyrarliðinu ætlunarverk sitt í gærkvöldi, að klára einvígið gegn Val á heimavelli. Við birtum hér umfjöllun
Hjalta Þórs Hreinssonar
, blaðamanns Visir.is og Fréttablaðsins um leikinn.
Umfjöllun: Valur stóðst áhlaup Akureyrar
Hátíðarhöldunum á Akureyri var slitið af Valsmönnum sem lögðu heimamenn 25-31 í skemmtilegum handboltaleik í Höllinni í kvöld. Staðan í einvígi liðanna er því 1-1 og þau mætast í úrslitaleik um sæti í úrslitum N-1 deildarinnar á mánudag.
Mér var boðin gleðilega hátíð við komu í Höllina en umgjörðin í kringum leikinn var frábær. Akureyringar voru tæplega 1000 í Höllinni, mikil stemning löngu fyrir leik og svo allan leikinn.
Það var magnað að horfa yfir stúkuna í gær
Mynd: Mbl/Þórir Tryggvason
Það var skammarlegt að sjá hversu fáir mættu á fyrri leik liðanna í Vodafone-höllinni en eins og Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals sagði eftir leikinn í kvöld: „Þetta er handbolti.“
Og leikurinn var góður. Akureyringar komust í 2-0 og voru með blóð á tönnunum á heimavelli. Vörn þeirra var virkilega föst fyrir strax frá fyrstu sókn og þeim var strax hent útaf, eins og sjö sinnum í viðbót í leiknum. Leikurinn var mjög erfiður að dæma en Akureyringar voru vægast sagt ósáttir við dómgæsluna í leiknum.
Valur barði frá sér og vaknaði eftir nokkrar mínútur, komst í 3-7. Valsvörnin var mjög öflug og Hlynur Morthens góður þar fyrir aftan. Hann varði alls 20 skot í leiknum.
Staðan var 9-11 þegar Akureyri fékk hraðaupphlaup en í því miðju stal Baldvin Þorsteinsson boltanum glæsilega og skoraði fyrir Val. Þetta var lykilatriði rétt fyrir hálfleikinn en í honum var staðan 9-13 fyrir gestina.
Valsmenn bættu í í upphafi seinni hálfleiks. Þeir komust í 13-19 áður en áhlaup Akureyringa hófst. Það endaði með því að staðan var orðin 17-19 þegar þrettán mínútur voru búnar af hálfleiknum. Þá vöknuðu Valsmenn aftur, komust í 17-22 og kláruðu leikinn.
Eftir það var þetta aldrei spurning og sigur Vals öruggur. Lokatölur 25-31.
Akureyringar spiluðu fína vörn og sókn þeirra var ágæt. Þá vantaði að fá nokkrar markvörslur til að fá hraðaupphlaupin sín í gang, markmenn liðsins vörðu þó samtals 15 skot. Óstöðugleiki liðsins sýndi sig og lítið kom frá Jónatan Magnússyni og Árna Þór Sigtryggssyni.
Valsmenn mega vel við una. Akureyringar þeirra Baldvin og Arnór Þór Gunnarsson léku vel og vörn þeirra var lengst af fín. Þá spilaði Hlynur vel eins og áður sagði.
Það eru skiptar skoðanir sem eðlilegt er eftir svona baráttuleik. Dómarar leiksins, Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson voru ekki í öfundsverðu hlutverki. Þeir gerðu hvað þeir gátu til að halda spennustiginu niðri en dæmdu nokkrum sinnum furðulega. Akureyringum fannst mikið á þá halla og þeir kvörtuðu mikið yfir leikaraskap Valsmanna.
Þrátt fyrir að dómararnir hafi ekki átt sinn besta dag verður ekki litið framhjá því að Valsmenn voru einfaldlega betri aðilinn í leiknum og áttu sigurinn skilinn.
Mörk Akureyrar (skot)
: Oddur Grétarsson 8/4 (10/5), Heimir Þór Árnason 7/1 (10/1), Hörður Fannar Sigþórsson 4 (6), Guðmundur Hólmar Helgason 3 (10), Hreinn Þór Hauksson 1 (2), Geir Guðmundsson 1 (2), Jónatan Þór Magnússon 1 (5), Árni Sigtryggsson 0 (5),
Varin skot
: Hörður Flóki Ólafsson 8 (23) 35%, Hafþór Einarsson 6 (22) 27%.
Hraðaupphlaup
: 9 (Heimir 4, Oddur 3, Hörður, Hreinn)
Fiskuð víti
: 5 (Hörður 2, Heimir 2, Jónatan)
Utan vallar
: 16 mín.
Mörk Vals (skot)
: Arnór Þór Gunnarsson 9/4 (12), Fannar Þór Friðgeirsson 9/1 (15), Sigurður Eggertsson 5 (12), Baldvin Þorsteinsson 4 (8), Elvar Friðriksson 2 (3), Ingvar Árnason 1 (3), Jón Björgvin Pétursson 1 (1), Sigfús Páll Sigfússon 0 (4).
Varin skot
: Hlynur Morthens 20 (43) 47%, Ingvar Guðmundsson 0 (2) 0%.
Hraðaupphlaup
: 8 (Baldvin 3, Arnór 2, Jón, Ingvar, Fannar.)
Fiskuð víti
: 5 (Sigfús Páll 2, Sigurður, Arnór, Fannar)
Utan vallar
: 12 mín.
Skoða myndasyrpu Þóris Tryggvasonar á mbl.is
.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson