Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það verður gaman að fylgjast með þeim félögum á mótinu
6. september 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Opna Norðlenska mótið og leikmannakynning
Á fimmtudaginn byrjar handboltinn að rúlla hér norðan heiða þegar við fáum fimm lið í heimsókn í árlegt æfingamót sem líkt og í fyrra er kennt við Norðlenska. Liðin sem koma að þessu sinni eru úrvalsdeildarliðin: Afturelding, Haukar, Valur ásamt 1. deildarliðunum ÍR og Stjörnunni.
Hvert lið leikur fjóra leiki og hefst fjörið á fimmtudaginn en þá verða leiknir þrír leikir og ráða úrslit þeirra hvernig liðin raðast í riðla. Á föstudag leika öll liðin tvo leiki og ætti þá að vera ljóst með röð þeirra í riðlunum en mótinu lýkur svo á laugardag með því að liðin leika um sæti, efstu lið riðlanna leika um 1. sætið og þannig áfram.
Mótið er mikilvægur þáttur í undirbúningi liðanna fyrir átökin í Íslandsmótinu en N1 deildin hefst mánudaginn 26. september. Eins og kunnugt er tók Akureyrar liðið þátt í æfingamóti í Þýskalandi í lok ágústmánaðar.
Haukar og Afturelding léku um síðustu helgi á Ragnarsmótinu á Selfossi þar sem Haukar urðu í 2. sæti og Afturelding í 5. sæti.
Sjá öll úrslit Ragnarsmótsins
.
ÍR, Valur og Afturelding taka þessa dagana einnig
i þátt í Reykjavíkurmótinu og þar vitum við að Afturelding vann ÍR sem einnig er búið að tapa fyrir Fram. Valur vann öruggan sigur á Víkingum.
Mótið hefst
fimmtudaginn 8. september
með þrem leikjum og ráða úrslit þeirra niðurröðun liðanna í riðlana tvo.
Athugið að tímasetning þessara leikja hefur breyst frá því sem auglýst er í dagskránni og hefjast þeir sem hér segir:
18:00
Akureyri
Afturelding
Leikur 1
19:30
Valur
Stjarnan
Leikur 2
21:00
ÍR
Haukar
Leikur 3
Vinningslið úr leikjum 1 og 2 hér að ofan ásamt tapliðinu úr leik 3 fara í riðil 1 og hin liðin fara í riðil 2.
Föstudaginn 9. september fer riðlakeppnin fram og leika öll liðin tvo leiki.
Dagskrá föstudagsins er þannig:
13:00
Tapliðið úr leik 1 (
lið 1
)
Tapliðið úr leik 2 (
lið 2
)
Leikur 4
14:30
Sigurliðið úr leik 1 (
lið 4
)
Tapliðið úr leik 3 (
lið 6
)
Leikur 5
16:00
Lið 1
Sigurliðið úr leik 3 (
lið 3
)
Leikur 6
17:30
Sigurliðið úr leik 2 (
lið 5
)
Lið 6
Leikur 7
19:00
Lið 2
Lið 3
Leikur 8
20:30
Lið 4
Lið 5
Leikur 9
Laugardaginn 10. september
lýkur mótinu með því að leikið verður um sæti.
11:00
Leikur 5. sæti
Leikur 10
12:30
Leikur 3. sæti
Leikur 11
14:00
Leikur 1. sæti
Leikur 12
Leikinn er fullur leiktími eða 2 x 30 mínútur.
Verðlaun veitt fyrir 1. sæti og einnig fá
Besti markmaður
,
Besti varnarmaður
,
Besti sóknarmaður
og
Besti leikmaður
mótsins viðurkenningar.
Aðgangseyrir á mótið er 1.000 krónur og gildir miðinn á alla leiki mótsins.
A.m.k. þrír fyrrum leikmenn Akureyrar eru væntanlegir með liðunum, Halldór Logi Árnason gekk til liðs við ÍR í sumar, Bjarni Jónasson leikur með Stjörnunni og Hafþór Einarsson varði mark Aftureldingar síðasta vetur.
Leikmannakynning
Að loknum leik Akureyrar og Aftureldingar á fimmtudaginn verður árleg leikmannakynning félagsins. Hún hefst klukkan 20:00 og verður í Íþróttahöllinni.
Hópurinn sem lék í Þýskalandi á dögunum
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson