Okkar menn koma við sögu í pressuleiknum
| | 4. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarSveinbjörn kallaður inn í landsliðið - pressuleikur í kvöldÍ kvöld klukkan 20:00 mætir íslenska karlalandsliðið úrvalsliði N1 deildarinnar eða pressuliðinu. Nú hefur verið tilkynnt hverjir skipa liðin en nokkrar breytingar hafa orðið á landsliðshópnum, nú síðast var tilkynnt að Sveinbjörn Pétursson, markvörður Akureyrar hafi verið kallaður inn í landsliðshópinn. En Oddur Gretarsson og Bjarni Fritzson eru í pressuliðshópnum.
Landsliðshópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Sveinbjörn Pétursson, Akureyri Hreiðar Levy Guðmundsson, Nötteröy
Aðrir leikmenn: Alexander Petersson, F.Berlin Arnór Atlason, AG Aron Pálmarsson, Kiel Ásgeir Örn Hallgrímsson, Burgdorf Bjarki Már Elísson, HK Ingimundur Ingimundarson, Fram Kári Kristján Kristjánsson, Wetzlar Róbert Gunnarsson, RN Löwen Rúnar Kárason, Bergische Sigurbergur Sveinsson, Basel Snorri Steinn Guðjónsson, AG Sturla Ásgeirsson, Val Vignir Svavarsson, Burgdorf Þórir Ólafsson, Vive Kielce
Pressuliðiðshópurinn, sem er undir stjórn Kristjáns Arasonar og Einars Jónssonar er þannig skipaður:
Markverðir: Björn Ingi Friðþjófsson, HK Daníel Freyr Andrésson, FH
Aðrir leikmenn: Freyr Brynjarsson, Haukum Oddur Gretarsson, Akureyri Einar Rafn Eiðsson, Fram Gylfi Gylfason, Haukum Ólafur Guðmundsson, Nordsjælland Ólafur Gústafsson, FH Róbert Aron Hostert, Fram Anton Rúnarsson, Val Bjarni Fritzson, Akureyri Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK Tjörvi Þorgeirsson, Haukum Atli Ævar Ingólfsson, HK Heimir Óli Heimisson, Haukum Ægir Hrafn Jónsson, Fram
Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 20:00 og verður í Laugardalshöllinni. Hann verður sýndur beint á SportTV.is og hefst útsending þeirra klukkan 19:40.
Smelltu hér til að fylgjast með útsendingunni. |