 Þrír sigurleikir hjá strákunum
| | 14. júlí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarU-20: Ísland hafnaði í 11. sæti eftir sigur á Pólverjumí dag tryggðu strákarnir sér 11. sætið á EM með fjögurra marka sigri á Pólverjum eftir að hafa verið 18:12 mörkum yfir í hálfleik.
Okkar menn, Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason voru atkvæðamestir hjá íslenska liðinu í dag. Geir skoraði tíu mörk og Guðmundur Hólmar sex en hann meiddist strax í öðrum leik í mótinu.
Mörk Íslands í dag: Geir Guðmundsson 10, Guðmundur Hólmar Helgason 6, Garðar Sigurjónsson 3, Agnar Smári Jónsson 3, Árni Benedikt Arnarson 3, Pétur Júníusson 2, Leó Snær Pétursson 2, Sveinn Aron Sveinsson 2, Magnús Magnússon 1.
Í gær spiluðu strákarnir við Rússa um hvort liðið léki um 9. sætið og lauk þeim leik með þriggja marka sigri Rússa 27:24. Líkt og í flestum leikjum Íslands var Geir Guðmundsson markahæstur, að þessu sinni með sjö mörk.
Mörk Íslands: Geir Guðmundsson 7, Sveinn Aron Sveinsson 4, Árni Benedikt Árnason 3, Magnús Óli Magnússon 2, Leó Snær Pétursson 2, Ísak Rafnsson 2, Þráinn Orri Jónsson 2, Garðar Sigurjónsson 1, Einar Sverrisson 1. |