Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Sissi var markahæstur í dag5. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Grótta vann bikarleikinn - Myndir Strákarnir í 2. flokki Akureyrar mættu Gróttu í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í dag. Gróttumenn byrjuðu betur og náðu þriggja marka forskoti, 3 - 6 í upphafi. Það stóð þó ekki lengi því Akureyri jafnaði í 6 – 6 og spenna í leiknum. Gróttumenn náðu aftur góðum tökum á leiknum undir lok hálfleiksins og leiddu 10 – 13 í hálfleik. Vörn Gróttu var öflug og fengu þeir fjölmörg hraðaupphlaupsmörk eftir að vörn þeirra hafði unnið boltann af Akureyrarliðinu.Daníel Matthíasson skorar af línunni
Grótta hélt sínu striki í upphafi seinni hálfleiks og náði fimm marka forskoti, 10 – 15 sem hélst lengst af, varð reyndar mest sex mörk, 14 – 20 og 16 – 22. Útlitið var ekki gott en með kröftugum endaspretti tókst Akureyri að saxa á forskotið og hleypa spennu í leikinn á ný. Munurinn fór niður í tvö mörk 24 – 26 en Grótta stóð áhlaupið af sér og sigraði 25 – 28.Alvörugefnir menn á bekknum
Mörk Akureyrar: Sigþór Árni Heimisson 6, Ásgeir Jóhann Kristinsson 5, Garðar Jónsson 4, Daníel Matthíasson 3, Friðrik Svavarsson 2, Kristján Sigurbjörnsson 2, Snorri B. Atlason 2 og Egill Gunnarsson 1. Tomas Olason stóð í markinu lengst af og átti fínan leik. Á lokamínútunum kom Bjarki Símonarson í markið.Tomas ver með tilþrifum
Mörk Gróttu: Kristján Jóhannsson 11, Vilhjálmur Hauksson 7, Þráinn Jónsson 5, Egill Ploder 3 og Árni B. Árnason 2. Þar með er bikarþátttöku 2. flokks lokið að þessu sinni en þá er bara að einbeita sér að deildinni. Þórir Tryggvason sendi okkur myndir frá leiknum og er hægt að skoða þær hér . Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook