Bergvin er vel að útnefningunni kominn
| | 12. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarBergvin í úrvalsliði 14. umferðar hjá Mbl og handbolti.orgMorgunblaðið birti í dag val sitt á úrvalsliði 14. umferðar N1 deildar karla. Fulltrúi Akureyrar Handboltafélags að þessu sinni er Bergvin Þór Gíslason sem átti stórleik þegar liðið mætti Val síðastliðinn fimmtudag.
Morgunblaðið valdi HK manninn Vilhelm Gauta Bergsveinsson besta leikmann umferðarinnar en úrvalslið Morgunblaðsins er þannig skipað: Líkt og áður þá segir talan í sviganum hversu oft viðkomandi leikmaður hefur verið valinn í liðið:
Vinstri hornamaður: Bjarki Már Elísson, HK (5) Vinstri skytta: Bergvin Þór Gíslason, Akureyri (3) Leikstjórnandi: Ásbjörn Friðriksson, FH (4) Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram (3) Hægri hornamaður: Einar Rafn Eiðsson, FH (3) Línumaður: Garðar Sigurjónsson, Fram Markvörður: Valtýr Már Hákonarson, Fram Varnarmaður: Vilhelm Gauti Bergsveinsson, HK Leikmaður umferðarinnar: Vilhelm Gauti Bergsveinsson, HK
Handbolti.org hefur einnig valið úrvalslið 14. umferðarinnar og er þeirra val ekki ósvipað þó eru þeir ekki sammála mbl hvað varðar vali á markverði og hægri hornamanni. Listinn hjá handbolti.org er svohljóðandi:
Markvörður: Davíð Svansson, Aftureldingu (2)
Línumaður: Jón Þorbjörn Jóhannsson, Haukum (4)
Vinstri hornamaður: Bjarki Már Elísson, HK (4)
Vinstri skytta: Bergvin Þór Gíslason, Akureyri (3)
Miðjumaður: Ásbjörn Friðriksson, FH (4)
Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram (4)
Hægri hornamaður: Finnur Ingi Stefánsson, Val (3)
Við óskum öllum þessum aðilum til hamingju með viðurkenninguna. |