 Guðmundur fór á kostum gegn Fram
| | 19. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarGuðmundur Hólmar í úrvalsliði 15. umferðar hjá handbolti.orgHandbolti.org birtir í dag val á úrvalsliði 15. umferðar N1 deildar karla. Akureyri Handboltafélag á einn fulltrúa í liðinu að þessu sinni, það er Guðmundur Hólmar Helgason en hann átti hreint magnaðan leik gegn Fram á sunnudaginn og skoraði þar 10 mörk úr 11 skotum.
Úrvalslið 15. umferðar er þannig skipað: Markvörður: Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum (2) Línumaður: Þrándur Gíslason, Aftureldingu (1) Vinstri hornamaður: Bjarki Már Elísson, HK (5) Vinstri skytta: Jóhann Jóhannsson, Aftureldingu (3) Miðjumaður: Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri (2) Hægri skytta: Björgvin Hólmgeirsson, ÍR (3) Hægri hornamaður: Einar Rafn Eiðsson, FH (3)
Morgunblaðið birtir sömuleiðis sitt val og einhverra hluta vegna er Guðmundur Hólmar ekki í náðinni hjá þeim en úrvalslið Morgunblaðsins er þannig skipað: Líkt og áður þá segir talan í sviganum hversu oft viðkomandi leikmaður hefur verið valinn í liðið:
Vinstri hornamaður: Stefán Darri Þórsson, Fram Vinstri skytta: Jóhann Jóhannsson, Aftureldingu (4) Leikstjórnandi: Sigurður Eggertsson, Fram (3) Hægri skytta: Logi Geirsson, FH (2) Hægri hornamaður: Einar Rafn Eiðsson, FH (4) Línumaður: Þrándur Gíslason, Aftureldingu Markvörður: Kristófer Fannar Guðmundsson, ÍR Varnarmaður: Ingimundur Ingimundarson, ÍR Leikmaður umferðarinnar: Jóhann Jóhannsson, Aftureldingu. Guðmundur Hólmar og Logi Geirsson eru í sitt hvoru úrvalsliðinu Við óskum Guðmundi Hólmari og öllum ofangreindum leikmönnum til hamingju með tilnefningarnar. |