Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
ÍR hafði betur í hörkuleik - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bjarni Fritzson mættur til leiks á ný - með fimm mörk í leiknum

3. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

ÍR hafði betur í hörkuleik

Leikur ÍR-inga og Akureyringa í Austurbergi byrjaði með látum en Akureyri varð fyrir skakkaföllum í byrjun leiks þegar Hreinn Þór Hauksson fór meiddur af velli. En það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins en svo skiptust liðin á að ná forystu í leiknum. Í stöðunni 3-3 kom góður kafli hjá heimamönnum sem kom þeim í 6-3. Það létu gestirnir ekki á sig fá og eftir að minnka forskotið jafnt og þétt þá var staðan 10-9 þegar stutt var eftir af fyrri hálfleik. ÍR skoraði seinasta mark hálfleiksins og leiddi 11-9 þegar flautað var til hálfleiks.

Það var svipað uppá teningnum í seinni hálfleik en heimamenn leiddu með 1-2 mörkum meira og minna allan seinni hálfleikinn. Þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum var staðan 15-13 fyrir ÍR en Bjarni Fritzson minnkaði muninn í eitt mark með vítaskoti.


Bjarni Fritzson skorar eitt fimm marka sinna í leiknum. Mynd: Kristinn/Mbl

ÍR reyndi að klippa Guðmund Hólmar úr leiknum enda hafði Guðmundur verið besti leikmaður gestanna. Akureyri náði að jafna í 15-15 þegar 18 mínútur voru eftir og ÍR-ingar í vandræðum í sóknarleiknum. Þegar 13 mínútur voru eftir var staðan 17-16 fyrir ÍR en liðið komst í 2 marka forskot en misstu það svo niður og Akureyri jafnaði í 17-17 með marki frá Geir Guðmundssyni. ÍR tapaði boltanum í næstu sókn og Heiðar Þór Aðalsteinsson skoraði glæsilegt mark sem kom Akureyri yfir í leiknum. Bjarki Sigurðsson var ekki sáttur með sína menn og tók leikhlé. Sturla Ásgeirsson jafnaði metin í 18-18 en svo var Geir Guðmundssyni vikið af velli fyrir að tefja leikinn, ansi klaufalegt. ÍR skoraði aftur þegar 7 mínútur voru eftir en það var Davíð Georgsson sem kom heimamönnum í 19-18. Þá tók Akureyri leikhlé til að fara yfir málin enda búnir að missa forystuna í leiknum. Sturla skoraði aftur fyrir ÍR og kom liðinu í 20-18 og virtust Akureyringar vera að missa móðinn.

Þegar 4 mínútur voru eftir var forysta ÍR 1 mark en Akureyri náði þá boltanum eftir að ruðningur var dæmdur á ÍR. Akureyri fór illa af ráði sínu í sókninni en Kristófer, markmaður ÍR, varði heldur slakt skot gestanna. ÍR fengu sókn en þeir tóku leikhlé þegar um 40 sekúndur voru eftir til að nýta tímann sem best. ÍR lék sig í vitleysu í sókninni og missti boltann. Akureyri fékk seinustu sókn leiksins en Kristófer Fannar Guðmundsson gerði sér lítið fyrir og varði seinasta skot Akureyringum í leiknum sem kom eftir skot úr horninu og tryggði hann heimamönnum sigurinn í leiknum.

ÍR er sama og búið að tryggja sig í úrslitakeppnina með sigrinum en það þarf ansi mikið að ganga á svo þeir missi sitt sæti þar.
Eins og kom fram hér að framan þá missti Akureyri Hrein Þór Hauksson meiddan af velli strax í upphafi leiks, Bergvin Þór Gíslason gat lítið sem ekkert beitt sér í sókninni vegna eymsla í öxl. Jákvætt var hins vegar að Bjarni Fritzson kom inn í liðið og lék stóran part leiksins.

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 5 (3 úr vítum), Geir Guðmundsson 4, Guðmundur Hólmar Helgason 3, Heiðar Þór Aðalsteinsson 3, Bergvin Þór Gíslason 2, Andri Snær Stefánsson 1 og Heimir Örn Árnason 1 mark.
Í markinu varði Jovan Kukobat 12 skot.

Mörk ÍR: Jón Heiðar Gunnarsson 5, Sturla Ásgeirsson 5, Guðni Már Kristinsson 4, Björgvin Hólmgeirsson 3, Davíð Georgsson 1, Hrannar Máni Gestsson 1 og Sigurjón F Björnsson 1 mark.
Kristófer Fannar Guðmundsson varði 11 skot í marki ÍR.

Þessi umfjöllun er að mestu fengin frá sport.is.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson