Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Guðmundur Hólmar og Snorri voru atkvæðamestir í dag15. apríl 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Akureyri úr leik eftir framlengingu gegn Val Það var gríðarleg spenna í Höllinni í kvöld þegar Akureyri og Valur áttust við í átta liða úrslitum Íslandsmótsins. Jafnt var á öllum tölum lengst af í fyrri hálfleik en Valsmenn náðu fimm marka forskoti undir lok hálfleiksins. Akureyri klóraði þó í bakkann og lagaði stöðuna með síðustu þrem mörkum hálfleiksins þannig að forskot Vals var tvö mörk í hálfleik, 10 – 12. Akureyri jafnaði fljótlega í seinni hálfleik en Valsmenn héldu þó frumkvæðinu í leiknum lengst af. Lokamínúturnar voru æsispennandi og lauk með því að Akureyri fékk vítakast sem Ásgeir Jóhann Kristjánsson skoraði úr og jafnaði í 24 – 24 og grípa þurfti því til framlengingar. Valsmenn reyndust sterkari í framlengingunni og fóru með tveggja marka sigur 27 – 29 og eru þar með komnir í fjögurra liða úrslitin.Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 10, Snorri Björn Atlason 6, Ásgeir Jóhann Kristinsson 4, Kristján Sigurbjörnsson 3, Friðrik Svavarsson 2 og Geir Guðmundsson 2. Í markinu varði Tomas Olason 12 skot (1 vítakast) og Gunnar Bjarki Ólafsson 3 skot þar af 1 víti. Hjá Val skoruðu Alexander Júlíusson og Agnar Smári Jónsson 8 mörk hvor, Bjartur Guðmundsson og Gunnar Þórsson 4 hvor, Sveinn Aron Sveinsson 3 og Valdimar Sigurðsson 2. Besti maður Valsliðsins var þó markvörðurinn Sigurður Ólafsson sem átti sannkallaðan stórleik og geta Valsmenn þakkað honum að hafa komist í gegnum leikinn og áfram í mótinu. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook