Bjarni Fritzson sagði Björgvin helvíti erfiðan viðureignar
| | 29. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarViðtöl eftir leik ÍR og AkureyrarÍvar Benediktsson, blaðamaður Morgunblaðsins var mættur í Austurbergið í gær og tók þar viðtöl við Heimi Örn Árnason, þjálfara Akureyrar svo og Kristófer Fannar Guðmundsson, markvörð og hetju ÍR-inga. Viðtöl Ívars má sjá hér að neðan:Heimir Örn: Mjög vonsvikinn„Ég er mjög vonsvikinn,“ sagði Heimir Örn Árnason, annar þjálfari Akureyrar, eftir fjögurra marka tap, 27:23, fyrir ÍR í Olís-deildinni í handknattleik karla í Austurbergi í dag. „Við vorum yfir, 19:18, þegar 10 til 15 mínútur voru til leiksloka. Þá fengum við nokkur góð marktækifæri en tókst ekki að skora. Í staðinn fengum við á okkur léleg mörk. Síðan létum við markvörð ÍR verja alltof mikið. Mörg skota minna manna voru slök. Þeir voru ekki sjálfum sér líkir. Þess utan vorum við í vandræðum með Björgvin Hólmgeirsson er í flottu formi, betra en í fyrra,“ sagði Heimir Örn Árnason sem nú hefur lagt skóna á hilluna og alfarið tekið við stjórn liðsins frá hliðarlínunni Nánar er rætt við Heimir á meðfylgjandi myndskeiði og m.a. um það hvernig er að fylgjast með leiknum frá hliðarlínunni.
Kristófer: Þá small vörninKristófer Fannar Guðmundsson, markvörður ÍR, fór á kostum á lokakafla leiksins við Akureyri í Olísdeildinni í handknattleik í Austurbergi í dag. Hann skellti nánast í lás á lokakaflanum og lagði grunn að því forskoti sem ÍR-liðið náði og hélt til leiksloka. „Við náðum loksins að leika eins og lagt var upp með þegar kom fram í síðari hálfleik. Þá small vörnina og ég náði nokkrum skotum,“ sagði Kristófer Fannar sem varði 21 skot, þar af 10 skot síðasta stundarfjórðung leiksins.
Blaðamaður Sport.is var sömuleiðis mættur í Austurbergið og ræddi við Bjarna Fritzson og Björgvin Hólmgeirsson eftir leikinn.Bjarni Fritzson: Bjöggi erfiðurBjörgvin: Fannst Kristófer bestur |