Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Magnaður leikur hjá stelpunum29. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarStórsigur hjá KA/Þór gegn UMFA í kvennaboltanum Það var mikill handboltadagur á Akureyri á laugardaginn. Á meðan Akureyrarliðið lék gegn ÍR í Austurberginu léku Hamrarnir sinn fyrsta leik í 1. deild eins og fjallað er um hér á síðunni. En jafnframt lék KA/Þór sinn fyrsta heimaleik í úrvalsdeild kvenna í KA-heimilinu. KA/Þór hóf leikinn af miklum krafti og náði strax góðu forskot. Þær gáfu þó aðeins eftir í lok fyrri hálfleiks en leiddu þó með tveimur mörkum í hálfleik, 14-12. Martha Hermannsdóttir fór mikinn í sóknarleik Norðanstúlkna og spilaði stöllur sínar uppi, hvað eftir annað.Martha var frábær í leiknum
Í seinni hálfleik var aldrei spurning um hvort liðið fær með sigur að hólmi, en KA/Þór náði strax 9 marka forskoti og eftir það var ekki aftur snúið. Fjölmargir áhorfendur leiksins sáu stúlkurnar leika við hvurn sinn fingur og ber sérstaklega að nefna frammistöðu Sunnu Pétursdóttur í marki KA/Þór en hún varði fjölmörg skot, þrátt fyrir ungan aldur.Sunna Pétursdóttir átti stórleik í markinu
Markahæst í liði KA/Þór var Martha Hermannsdóttir með 10 mörk en Hekla Daðadóttir gerði 10 fyrir Aftureldingu. Mörk KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 10, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Birta Fönn Sveinsdóttir 4, Arna Valgerður Erlingsdóttir 3, Lilja Sif Þórisdóttir 3, Simone Antonia Pedersen 3, Erla Hleiður Tryggvadóttir 2 og Klara Fanney Stefánsdóttir 1.Sigurreifar í leikslok
Þá viljum við minna fólk á að enn er hægt að kaupa ársmiða á leiki stelpnanna. Um að gera er að setja sig í samband við einhverja stúlkuna í liðinu, þjálfara eða stjórn til þess að kaupa miða. Þeir kosta litlar 5000kr og veitir það aðgang í hálfleikskaffi á öllum 11 heimaleikjunum. Hér er hægt að skoða fjölmargar myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook