Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Um ÍBV mótherja Akureyrar á laugardaginn - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

ÍBV mæta sterkir til leiks í Olís-deildinni

2. október 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Um ÍBV mótherja Akureyrar á laugardaginn

Það eru fimm ár síðan ÍBV lék síðast í úrvalsdeild en síðasti leikur liðsins vorið 2008 var einmitt gegn Akureyri. Vestmannaeyingar unnu 1. deildina með töluverðum yfirburðum síðasta vor og ætla án vafa að berjast í efri hluta úrvalsdeildarinnar í ár.

Þeir hafa styrkt lið sitt mikið fyrir átökin í vetur. Þar ber fyrst að nefna að þeir réðu nýjan þjálfara, Gunnar Magnússon sem hefur verið aðstoðarlandsliðsþjálfari undanfarin ár auk þess að þjálfa Kristiansund, lið Jónatans Magnússonar í Noregi síðastliðin þrjú ár.

ÍBV hefur einnig fengið til sín öfluga leikmenn, athygli vakti í haust þegar Róbert Aron Hostert, fyrrum leikmaður Fram hætti við að fara erlendis en gekk til liðs við Eyjamenn. Tveir erlendir kappar komu til liðsins, hægri skyttan Filip Scepanovic, frá Serbíu sem er gríðarlega reyndur leikmaður svo og slóvenskur línumaður, landsliðsmaðurinn Matjaz Mlakar.
Þá fengu þeir Agnar Smára Jónsson frá Val og hafa endurheimt Andra Heimi Friðriksson úr meiðslum.

Eini leikmaðurinn sem ÍBV hefur misst frá því í fyrra er Nemanja Malovic sem átti reyndar frábært tímabil í fyrra og var langmarkahæsti maður liðsins í 1. deildinni.

Akureyringar munu án efa taka vel á móti skyttunni, Magnúsi Stefánssyni frá Fagraskógi en þessi fyrrum leikmaður Akureyrar hefur verið í herbúðum Eyjamanna síðastliðin tvö ár. Magnús lék síðast með Akureyri þann 3. maí 2008 en það var einmitt gegn ÍBV. Um haustið gekk Magnús til liðs við Fram og lék með þeim þar til hann fluttist til Eyja.


Magnús í síðasta leik með Akureyri, einmitt gegn ÍBV vorið 2008

Eyjamenn hófu úrvalsdeildina með glæsilegum átta marka sigri á bikarmeisturum ÍR. Þeir voru fjórum mörkum undir í hálfleik en tóku öll völd á vellinum í seinni hálfleik og völtuðu yfir heimamenn. Þar var Theodór Sigurbjörnsson markahæstur með 8 mörk, Róbert Aron Hostert með 6 og Grétar Þór Eyþórsson með 5 mörk, Matjaz Mlakar 2, Andri Heimir Friðriksson 2, Filip Scepanovic 2, Sindri Haraldsson 1, Guðni Ingvarsson 1 og Magnús Stefánsson 1. Varnarleikur liðsins small saman í seinni hálfleiknum undir forystu Sindra Haraldssonar og þar fyrir aftan átti markvörðurinn Haukur Jónsson stórleik.


Róbert Hostert í kunnuglegri stellingu. Mynd: Andri Marinó Karlsson sport.is


Eyjamenn fagna sigri í 1. umferð. Mynd: Andri Marinó Karlsson sport.is

Í síðustu umferð fengu Eyjamenn Hauka í heimsókn og má segja að sá leikur hafi þróast gjörólíkt ÍR leiknum, jafnt var í hálfleik 10-10 en í seinni hálfleik hrundi leikur þeirra og Haukar unnu tólf marka sigur 18-30. Þess má geta að varnarjaxlinn Sindri fékk beint rautt spjald og trúlega veikti það vörnina verulega.
Í leiknum gegn Haukum var markaskorun liðsins þannig: Andri Heimir Friðriksson 4,Filip Scepanovic 3, Agnar Smári Jónsson 2, Matjaz Mlakar 2, Theodór Sigurbjörnsson 2, Grétar Eyþórsson 2, Magnús Stefánsson 1, Róbert Aron Hostert 1 og Guðni Ingvarsson 1.

Atkvæðamestu leikmenn ÍBV í fyrra, fyrir utan Nemanja, voru þeir Theodór og Andri Heimir með 95 mörk í deildinni, Grétar Þór Eyþórsson með 89 mörk og Magnús Stefánsson með 58 mörk.

Það má bóka hörkuleik á laugardaginn þar sem bæði liðin ætla sér að kvitta fyrir tapaða leiki síðustu umferðar. Leiktíminn er raunar mjög óvenjulegur, klukkan 13:30 á laugardegi sem stafar af því að Eyjamenn þurfa að komast heim áður en flugvöllurinn í Eyjum lokar.

Sjáumst í Höllinni á laugardaginn og munið að minna alla áhugamenn um handbolta á þessa óvanalegu tímasetningu leiksins.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson