Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það mun mikið mæða á Arnóri Þorra á laugardaginn19. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: breyting á leiktíma á laugardaginn Búið er að seinka leik Akureyrar og Aftureldingar í 2. flokki á laugardaginn um klukkutíma þannig að hann hefst klukkan 17:00 í staðinn fyrir klukkan 16:00 eins og áður var fyrirhugað. Meistaraflokkar beggja liða standa í ströngu þessa helgi en nokkrir strákar í 2. flokki eru í leikmannahópi meistaraflokkanna. Þannig á meistaraflokkur Akureyrar útileik í Vestmannaeyjum klukkan 13:30 á laugardaginn og ef allt fer að óskum verða þeir hugsanlega rétt lentir á Akureyri þegar 2. flokks leikurinn hefst. Meistaraflokkur Aftureldingar á leik í 1. deildinni á föstudagskvöldinu, útileik gegn KR. Leikurinn á laugardaginn er mjög mikilvægur fyrir Akureyrarliðið sem þarf nauðsynlega á sigri að halda til að halda í vonina um sæti í úrslitakeppni 2. flokks í vor. Liðin eru núna í 6. og 7. sæti deildarinnar, Afturelding stigi ofar. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook