Sissi og Bjarni voru drjúgir í Eyjum
| | 24. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyringar fóru stigalausir frá EyjumÍBV endurtók leikinn frá síðustu helgi með því að vinna Akureyri í Eyjum, að þessu sinni með fimm mörkum, 27-22. Leikurinn þróaðist með svipuðum hætti og fyrir viku, Akureyri yfir strax í byrjun með góðum sóknarleik og ennþá betri varnarleik sem virtist illviðráðanlegur fyrir Eyjamenn. Eftir að Akureyri hafði komist í 4-6 misstu þeir tvo menn útaf og tveimur fleiri gengu heimamenn á lagið og skoruðu næstu fimm mörk leiksins.
Í hálfleik var tveggja marka munur. 10-8 fyrir heimamenn en Akureyrarliði kom sterkt til baka og jafnaði leikinn í 16-16 með góðum leikkafla. Í kjölfarið missti liðið menn af velli og Vestmanneyingar refsuðu grimmt og náðu í kjölfarið mest sex marka forskoti 24-18 sem þér létu ekki af hendi.
Bergvin Gíslason minnkaði muninn í fimm mörk með sirkusmarki á lokasekúndunum, lokastaðan 27-22.
Heimir Örn Árnason var ekki í leikmannahópnum í dag vegna eymsla nára en Hreinn Þór Hauksson kom inn í hópinn, þrátt fyri nefbrot í seinni FH leiknum og sömuleiðis kom Bergvin Þór Gíslason inn en eins og menn muna þá meiddist Bergvin á öxl í leiknum gegn Val.
Það var margt jákvætt í leiknum í dag, Sigþór Árni Heimisson átti skínandi leik í sókninni, sennilega einn sinn besta með liðinu og Bjarni Fritzson var góður líka. Það sem helst skildi á milli liðanna var markvarslan en markverðir Akureyrar náðu sér ekki á strik, með 8 varða bolta á móti 18 hjá markverði Eyjamanna.
Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 7 (2 úr vítum), Þrándur Gíslason 4, Sigþór Heimisson 3, Gunnar Þórsson 2, Kristján Orri Jóhannsson 2, , Bergvin Þór Gíslason 1, Halldór Logi Árnason 1, Hreinn Þór Hauksson 1 og Valþór Guðrúnarson 1. Í markinu varði Jovan 7 skot og Tomas 1.
Mörk ÍBV: Róbert Aron Hostert 9,Guðni Ingvarsson 5, Grétar Þór Eyþórsson 4, Agnar Smári Jónsson 3, Theodór Sigurbjörnsson 3 (1 úr víti), Magnús Stefánsson 2 og Andri Heimir Friðriksson 1. Í markinu varði Kolbeinn Aron Ingibjargarson 18 skot.
Næsti leikur Akureyrar er á heimavelli gegn ÍR, fimmtudaginn 6. mars og þarf ekki að hafa mörg orð um mikilvægi þess leiks. |