Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Halldór Logi var markahæstur í síðasta leik liðsins í KA heimilinu22. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri-Valur í KA-heimilinu - klukkan 19:30 Nú er búið að ákveða að leikur Akureyrar og Vals hefst klukkan 19:30 í dag. Eftir ófærð síðustu daga hefur gengið erfiðlega að opna Öxnadalsheiðina en nú telja menn að það muni takast og að leikurinn hefjist klukkan 19:30 í KA-heimilinu. Akureyrarliðið er ekki alveg ókunnugt því að spila í KA-heimilinu því fyrstu tvö tímabil liðsins 2006-2007 og 2007-2008 fóru heimaleikir liðsins fram þar. Sumarið 2008 var gólf Íþróttahallarinnar endurnýjað, skipt út gömlum dúk og sett vandað parket gólf og í kjölfarið var ákveðið að liðið færði æfingar og leiki sína þangað. Reyndar lék Akureyrarliðið bikarleik í KA-heimilinu 4. október 2008 gegn HKR (Handknattleiksfélag Reykjanesbæjar) og vann þar stærsta sigur í sögu félagsins, 51-15. Þrír núverandi leikmenn Akureyrar tóku þátt í þeim leik, Andri Snær Stefánsson, Halldór Logi Árnason og Hreinn Hauksson. Sjá umfjöllun um leikinn gegn HKR . Nú hefur bæði gólf og stúka verið endurnýjuð í KA-heimilinu þannig að aðstæður eru allar hinar ákjósanlegustu og um að gera fyrir alla stuðningsmenn að drífa sig á leikinn. Fyrir þá sem þekkja til sögunnar þá hafa leikir Akureyraliða og Valsmanna ávallt verið frábær skemmtun og engin ástæða til að efast um að það sama verði uppi á tengingunum í dag. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook