Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Hvernig var hljóðið í mönnum eftir Haukaleikinn? - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Kristján átti flottan leik gegn Haukunum



11. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvernig var hljóðið í mönnum eftir Haukaleikinn?

Það var mikið um að vera á öllum vígstöðvum íþróttafréttaritara í gærkvöldi en einhver viðtöl eru komin fram sem við skulum kíkja á. Byrjum á viðtölum Guðmundar Marinós Ingvarssonar, sem birtust á visir.is en hann ræðir við Heimi Örn Árnason og tvo leikmenn Hauka, þá Elías Má Halldórsson og Árna Stein Steinþórsson:

Heimir Örn: Frábær vörn í síðustu leikjum

„Við spiluðum það góða vörn að þetta leit mjög ljótt út fyrir þá, það er ekki spurning,“ sagði Heimir Örn Árnason þjálfari Akureyrar eftir leikinn í kvöld.

„Sóknarleikurinn okkar var erfiður. Við erum búnir að missa marga menn út en ég var mjög ánægður með lokakaflann hjá t.d. Sissa (Sigþóri Heimissyni) og Jóni Heiðari (Sigurðssyni). Þeir stigu flott upp.
Varnarleikurinn var frábær allan tímann og menn börðust eins og ljón.

Það er hræðilegt að klára ekki þennan leik. Við vorum með þetta í höndunum í lokin en stigið var mikilvægt. Við erum búnir að spila svona vörn í síðustu þremur, fjórum leikjum fyrir utan þennan bíbb hálfleik gegn Fram,“ sagði Heimir en Akureyri þarf að vinna HK í síðustu umferðinni á mánudag og treysta á að FH leggi ÍR að velli á sama tíma til að forðast umspil um sæti í deildinni á næsta tímabili.

„HK er sýnd veiði en ekki gefin og hefur spilað vel í síðustu leikjum en ef menn mæta klárir þá eigum við að klára svoleiðis leik.
„Það verður fullur fókus fyrir þann leik á mánudaginn og svo treystum við á okkar menn í Hafnarfirðinum að spila eins og menn. Þá náum við vonandi ÍR-ingum.

Það er hrikalega gott að ná þremur stigum úr Hafnarfirðinum í þessum tveimur skemmtilegu bílferðum. Þá erum við hrikalega sáttir. Ég er greinilega svona góður bílstjóri, er búinn að keyra fram og til baka.

Við vissum að Haukar myndu mæta af fullum krafti. Þeir eru alltaf sterkir varnarlega en detta niður á lágt plan sóknarlega. Við vissum það.

Serbneski markmaðurinn okkar var flottur (Jovan Kukobat). Hann varði eins og skepna. Ekta Serbi að verja aðeins í lokin. Ég er mjög ánægður með hann. Hann er búinn að vera mjög góður í allan vetur,“ sagði Heimir.


Heimir hvetur sína menn áfram í leiknum í gær. Mynd: visir.is

Elías: Lélegur leikur af okkar hálfu

„Fyrst þessi leikur þurfti að vera svona var ágætt að tryggja þetta með svona marki en þessi leikur var alls ekki nógu góður, það verður að viðurkennast,“ sagði Elías Már Halldórsson sem tryggði Haukum deildarmeistaratitilinn með síðasta marki leiksins í kvöld.

„Við æfðum mjög vel vikunni og það var hrikalega gott tempó þannig að þetta kom mér mjög á óvart. Við létum hann verja svaðalega frá okkur í byrjun og vorum í vandræðum með að koma okkur í færi.

Þetta var ströggl allan tímann og Akureyri að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Þetta var bara lélegur leikur af okkar hálfu.

Varnarleikurinn hjá Akureyri var góður á meðan sóknin hjá okkur var léleg. Það er hættulegt í þessari deild. Við náðum aldrei takti,“ sagði Elías en samt voru Haukar í góðri stöðu þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum.

„Það er týpískt fyrir þennan leik. Svo missum við það út úr höndunum og þegar maður er að spila illa þá á maður ekkert gott skilið. Við náðum samt að snúa þessu okkur í vil og klára þetta með jafntefli.

Mér fannst við spila á löngum köflum ágætis vörn en fáum fáa bolta varða og erum í vandræðum í sókninni. Við fáum eiginlega engin hraðaupphlaup og það er ekki góð uppskrift að sigri.

Við þurfum að spila betur en þetta. Við erum ekkert það góðir að við getum komið 40% og unnið leikina þannig. Það er ekki hægt. Við þurfum að spila á 100 ef við ætlum að klára þessa leiki,“ sagði Elías Már.


Elías már sækir að Þrándi í Akureyrarvörninni. Mynd: visir.is

Árni Steinn: Súrsæt tilfinning

„Þetta var athyglisvert. Það var hálfgerð deyfð yfir þessu sem er ótrúlegt í hálfgerðum úrslitaleik fyrir okkur,“ sagði Árni Steinn Steinþórsson hægri skytta Hauka.

„Við settum þetta upp sem úrslitaleik en náðum samt aldrei að kreista út þessa baráttu og kraft sem hefur einkennt okkur í vetur, sérstaklega sóknarlega.

Við vorum hægir og ragir og þetta var alls ekki nógu gott fyrir framan allt þetta fólk. Þetta er súrsæt tilfinning. En við tókum deildarmeistaratitilinn. Nú er bara einn titill eftir,“ sagði Árni Steinn en Haukar hafa landa öllum titlunum sem í boði hafa verið til þessa í vetur.

Haukar mæta ÍBV í lokaumferðinni á mánudagskvöldið og segir Árni Steinn það geta verið hættulegt að koma inn í þann leik með hálfum huga þó að engu sé að keppa.

„Þetta er skrýtinn leikur fyrir bæði lið en ef þú ert eitthvað að passa þig þá eru meiri líkur á að þú meiðist. Við verðum að mæta 100% í leikinn eins og hvern annan og þó úrslitin séu ekki aðalatriðið þá er mikilvægt að koma af skriði inn í úrslitakeppnina.


Árni Steinn búinn að missa Sigþór Árna Heimisson fram hjá sér. Mynd: visir.is

Á mbl.is ræddi Ívar Benediktsson við Kristján Orra Jóhannsson svo og við Haukamennina Patrek Jóhannesson og Árna Stein. Viðtölin við þá Haukamennina snúa reyndar lítið um leikinn heldur meira um deildarmeistaratitilinn og væntanlega úrslitakeppni.

Kristján: Eigum ennþá möguleika

Kristján Orri Jóhannsson, hornamaður Akureyrar, sagði stigið sem fékkst út úr leiknum við Hauka í Olís-deildinni í kvöld, nýtast liði sínu vel. Það héldi enn í vonina um að forðast umspilið og ná sjötta sætinu.

„Við þurfum að vinna HK í lokaumferðinni og treysta á að FH vinni ÍR á sama tíma. Þá náum við sjötta sætinu,“ sagði Kristján Orri sem Akureyri hefur betur í innbyrðisleikjum við ÍR verði liðin jöfn að stigum eftir lokaumferðina sem fram fer á mánudagskvöldið.
Nánar er rætt við Kristján Orra á meðfylgjandi myndskeiði.

Patrekur: Stór áfangi í höfn

Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, var að vonum glaðbeittur eftir að liðið tók við deildarmeistarabikarnum í Olís-deild karla í handknattleik á heimavelli í kvöld eftir að lið hans gerði jafntefli við Akureyri, 21:21.

„Það er klárlega stór áfangi í höfn. Þetta er bikarinn sem við höfum verið að vinna fyrir allan veturinn," sagði Patrekur en þetta er í fyrsta skipti sem hann vinnur þennan titil sem þjálfari og sá fjórði sem lið hans fagnar á leiktíðinni en áður hafa Haukar unnið Hafnarfjarðarmótið, deildarbikarinn og bikarmeistaratitilinn. „Nú er stefnan tekin á að þann stóra í stærstu bikarkeppninni,“ sagði Patrekur en nánar er rætt við hann á meðfylgjandi myndskeiði.

Árni: Tókum stigið og titilinn

„Þetta er erfiðasti titilinn að vinna því til þess að vinna hann þarf að sýna mikinn stöðugleika og hann höfum við sýnt í vetur,“ segir Árni Steinn Steinþórsson, leikmaður Hauka eftir að liðið varð deildarmeistari í Olís-deildinni í kvöld að loknu jafntefli, 21:21, á móti Akureyri á Ásvöllum.

„Við tókum stigið og titilinn, það skiptir mestu máli,“ segi Árni Steinn og viðurkenndi að leikurinn hafi ekki verið góður af hálfu Hauka og hreint kraftaverk að liði skyldi ná öðru stiginu eftir að hafa nærri því misst leikinn úr höndum sér á síðustu mínútunum.
Nánar er rætt við Árna Stein á meðfylgjandi myndskeiði.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson