Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
2. flokkur: Akureyri mætir Gróttu í úrslitakeppninni - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Handboltavertíðinni er ekki alveg lokið hjá Akureyri

19. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Akureyri mætir Gróttu í úrslitakeppninni

Deildarkeppni 2. flokks lauk á miðvikudaginn og nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. Valur hafði býsna mikla yfirburði í deildinni en að öðru leiti var deildin ótrúlega jöfn og óhætt að segja að hver leikur hafi skipt miklu máli. Akureyrarliðið fór rólega af stað framan af vetri og virtist jafnvel ekki ætla að ná í úrslitakeppnina en með mögnuðum kafla þar sem liðið vann sex leiki í röð tryggðu strákarnir sætið og gott betur.

Til marks um hve jöfn deildin var þá hefði einn sigur í viðbót eða að Valur hefði tekið lokaleikinn gegn Haukum af fullri alvöru þá hefði liðið hafnað í 2. sæti. En það gekk ekki eftir þannig að Akureyri hafnaði í 4. sæti deildarinnar.
Hér er hægt að skoða lokastöðu 1. deildar 2. flokks og sjá úrslit allta leikja deildarinnar.

8 liða úrslitakeppning er þannig að efstu sex lið 1. deildar komast þangað, efsta lið 2. deildar (FH/ÍH) kemur inn sem sjöunda liðið en liðin í 7. sæti fyrstu deildar (Stjarnan) og liðið í 2. sæti annarrar deildar (ÍR) leika um hvort liði kemur inn sem áttunda liðið. Þeim umspilsleik er nú lokið og vann Stjarnan.

Liðin sem mætast í 8-liða úrslitunum eru því:
Akureyri - Grótta
Afturelding - Fram
Haukar - FH/ÍH
Valur – Stjarnan

Einungis þarf að vinna einn leik en Akureyri og Grótta mætast hér fyrir norðan. Ekki er komin endanleg tímasetning á leikinn en samkvæmt skipulagi HSÍ eiga 8-liða úrslitin að fara fram föstudaginn 25. apríl. Fjögurra liða úrslitin eru síðan sett á miðvikudaginn 30. apríl og úrslitaleikurinn sunnudaginn 4. maí og fer hann fram í Austurbergi.

Við greinum frá tímasetningu og staðsetningu leiks Akureyrar og Gróttu um leið og þau mál skýrast.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson