Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Friðrik Svavarsson er einn þeirra sem leika bæði með 2. flokki og meistaraflokki22. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Akureyri og Grótta mætast á sunnudaginn Nú er komin tímasetning á leikina í 8-liða úrslitum 2. flokks karla. Á föstudaginn leika Haukar gegn FH/ÍH, Afturelding gegn Fram, Valur gegn Stjörnunni en leikur Akureyri og Gróttu verður leikinn sunnudaginn 27. apríl klukkan 13:30 í Íþróttahöllinni. Gróttumenn óskuðu eftir að leikurinn yrði færður þar sem töluverður hluti 2. flokksins er einnig með meistaraflokki félagsins sem leikur umspilsleiki gegn ÍR fimmtudaginn 24. apríl og laugardaginn 26. apríl. Ef kemur til þriðja leiks hjá þeim verður hann þriðjudaginn 29. apríl. Í úrslitum hjá 2. flokki er bara spilaður einn leikur þannig að það er allt undir í þessum leik á sunnudaginn. Liðið sem vinnur leikinn fer í undanúrslitin sem eru sett á miðvikudaginn 30. apríl og úrslitaleikurinn á sunnudaginn 4. maí. Akureyri á að geta stillt upp öflugu liði en alls eru níu leikmenn sem hafa komið við sögu í leikjum hjá meistaraflokki gjaldgengir í liðið hjá 2. flokki. Reyndar hafa þeir tekið mismikið þátt í leikjum 2. flokks í vetur enda fjölmennur hópur þar fyrir. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook