Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Brynjar var markahæstur í dag13. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Góður sigur hjá Akureyri gegn KR Strákarnir í 2. flokki hófu leiktíðina með öruggum sigri á KR í forkeppni 2. flokks þar sem leikið er um sæti í sjálfri deildarkeppninni. Það vakti nokkra athygli þegar strákarnir gengu til leiks að Akureyrarliðið lék í KA treyjum en einhver ruglingur hafði orðið með búninga liðsins. Leikmannahópur KR inga var frekar fáliðaður, en þeir mættu með einungis einn skiptimann. Jafnræði var með liðunum til að byrja með, jafnt á öllum tölum upp í 6-6. En þá skildu leiðir og Akureyri náði fjögurra marka forskoti og leiddi í kjölfarið 17-12 í hálfleik. Akureyrarliðið réð síðan algjörlega ferðinni í seinni hálfleik, mestur varð munurinn þrettán mörk í stöðunni 28-15 og 29-16 um miðbik hálfleiksins. Heimamenn slökuðu á undir lokin en leiknum lauk með níu marka sigri Akureyrar 33-24. Allir leikmenn Akureyrar fengu að spreyta sig og dreifðist markaskorunin vel eins og sjá má hér á eftir.Mörk Akureyrar: Brynjar Hólm Grétarsson 8, Einar Jónsson 5, Arnór Þorri Þorsteinsson 4, Kristján Sigurbjörnsson og Róbert Sigurðsson 3 mörk hvor, Almar Bjarkason, Arnþór Finnsson, Aron Gunnlaugsson, Heimir Pálsson 2 mörk hver, Benedikt Línberg og Birkir Guðlausson 1 mark hvor. Arnar Fylkisson stóð í markinu framan af en Bernharð Jónsson tók við og stóðu báðir sig með ágætum.Mörk KR: Sigurbjörn Markússon 8, Björn Ingi Jónsson og Pétur Gunnarsson 5 mörk hvor, Þorsteinn Markússon 4, Egill Þór Jóhannsson 2 mörk. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook