 Mikilvægir leikir framundan hjá landsliðinu
| | 7. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarSverre í landsliðshópi ÍslandsÍ dag var tilkynnt hverja Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari valdi í leikmannahópinn sem mætir Ísrael og Svartfjallalandi í undankeppni Evrópumótsins 2016. Ísland leikur gegn Ísrael í Laugardalshöll 29. október og síðan við Svartfjallaland ytra 2. nóvember.
Ásgeir Örn Hallgrímsson gefur ekki kost á sér í hópinn að þessu sinni og kemur Ernir Hrafn Arnarson í hópinn í hans stað. Ólafur Gústafsson og Ólafur Guðmundsson eru ekki í hópnum en Björgvin Þór Hólmgeirsson kemur inn. Sverre Anreas Jakobsson, leikmaður Akureyrar er í hópnum ásamt þremur öðrum sem leika hér á landi, en það eru Björgvin Þór Hólmgeirsson, Kári Kristján Kristjánsson og Þórir Ólafsson. Annars er hópurinn þannig skipaður:
Markmenn: Aron Rafn Eðvarðsson, Eskilstuna Guif Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club Aðrir leikmenn: Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen Arnór Atlason, St. Raphael Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club Aron Pálmarson, THW Kiel Bjarki Már Gunnarsson, Aue Björgvin Þór Hólmgeirsson, ÍR Ernir Hrafn Arnarson, Emsdetten Guðjón Valur Sigurðsson, Barcelona Kári Kristján Kristjánsson, Valur Róbert Gunnarsson, Paris Handball Sigurbergur Sveinsson, HC Erlangen Snorri Steinn Guðjónsson, Selestat Alsace HB Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein-Neckar Löwen Sverre Andreas Jakobsson, Akureyri Vignir Svavarsson, HC Midtjylland ApS Þórir Ólafsson, Stjarnan. |