Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Meistaraflokkur Akureyrar mætir Fram á laugardaginn8. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarÖll karlalið Akureyrar leika á útivöllum um helgina
Það má með sanni segja að handboltamenn á Akureyri verði á faraldsfæti um helgina, liðin spila fimm leiki, alla á útivöllum. Meistaraflokkur Akureyrar mætir Fram í Olís-deild karla, leikurinn er í Framhúsinu í Safamýri klukkan 15:00 á laugardaginn . Fram byrjaði með látum á heimavelli í fyrstu umferð og vann sigur á Haukum 22-21 en hafa síðan tapað fjórum leikjum í röð. Fram tapaði á heimavelli fyrir FH 24-28, á útivelli gegn ÍR 26-22, á heimavelli gegn Aftureldingu 22-27 og í síðustu umferð á útivelli gegn HK 31-22. Þannig að það má búast við að Guðlaugur Arnarsson, þjálfari Fram leggi allt í sölurnar til að snúa þessari þróun við á laugardaginn. Að sjálfsögðu gildir það sama um Akureyri sem örugglega ætlar sér sigur eftir tap í síðustu tveim leikjum. Nánar um þann leik síðar.Strákarnir í 2. flokki Akureyrar spila tvo leiki, fyrst á föstudaginn klukkan 18:00 gegn Val í Vodafone höllinni og daginn eftir gegn FH/ÍH í Kaplakrika en sá leikur hefst klukkan 12:30 á laugardag. 2. flokkur Akureyrar á erfitt verkefni fyrir höndum en þeirra leikir eru liður í forkeppni um sæti í efri deildinni í vetur. Liðið er með 2 stig eftir þrjá leiki, Valur er með 4 stig eftir tvo leiki og FH/ÍH með 2 stig eftir tvo leiki, töpuðu fyrir Val 28-24.Hamrarnir eiga útileik í 1. deild karla á föstudagskvöldið klukkan 19:30 en þeir mæta Þrótti í Laugardalshöllinni og mæta síðan ÍH á laugardaginn klukkan 16:30 í Kaplakrika. Hamrarnir unnu góðan sigur á ÍH hér á heimavelli í síðustu umferð, 27-22 og eru með 2 stig eftir þrjá leiki. Þróttur hefur náð sér í eitt stig í þrem leikum en þeir gerðu jafntefli við Míluna á Selfossi 24-24 um síðustu helgi.Leikir Akureyrarliðanna um helgina eru þannig í tímaröð: Föstudaginn 10. október klukkan 18:00 í Vodafone höllinni Valur - Akureyri, 2. flokkur karla Föstudaginn 10. október klukkan 19:30 í Laugardalshöll Þróttur – Hamrarnir, 1. deild karla Laugardaginn 11. október klukkan 12:30 í Kaplakrika FH/ÍH - Akureyri H, 2. flokkur karla Laugardaginn 11. október klukkan 15:00 í Framhúsinu Fram – Akureyri, Olís-deild karla. Laugardaginn 11. október klukkan 16:30 í Kaplakrika ÍH – Hamrarnir, 1. deild karla. Eins og kunnugt er þá leika margir strákar úr 2. flokki einnig með Hömrunum þannig að það er ljóst að föstudagskvöldið verður erfitt þar sem enginn tími er í raun á milli leikjanna, það verður forvitnilegt að sjá hvernig þjálfarar liðanna leysa úr þeim vanda. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook