Í tilefni leikdags hjá Akureyri þá birtir vefurinn Akureyri.net nærmynd af leikmanni Akureyri Handboltafélags. Þorleifur Ananíasson, sem sér um handboltamálin hjá Akureyri.net hefur lagt spurningalista fyrir alla leikmenn og þjálfara Akureyri handboltafélags og ætlar að birta þá einn og einn í senn á leikdögum liðsins.
Í dag kíkir Þorleifur í hægra hornið og hittir þar fyrir Kristján Orra Jóhannsson stórefnilegan vinstri handar leikmann með mikla tækni og ótrúlegan hraða. Það sem helst virðist skorta hjá þessum efnilega leikmanni er sjálfstraust og græðgi. Þegar það er komið getur Kristján Orri farið að gæla við stöðu í landsliðinu. Vonandi verður hann uppá sitt allra besta í hinum erfiða leik Akureyrar gegn ÍR í Austurbergi kl. 15:30 á laugardaginn. Það er alveg ljóst að Akureyri þarf á öllu sínu að halda ætli þeir sér eitthvað úr þeim leik.Fullt nafn: Kristján Orri Jóhannsson
Hvenær ertu fæddur: 05.11.93
Prenthæft gælunafn: Krissi
Með hvaða félögum hefur þú leikið: Þrótti og Gróttu.
Hefur þú leikið í landsliði: Já, ég á nokkra leiki með U21.
Hver er þín besta staða á vellinum: Hægra horn
Hver er/var fyrirmynd þín í handbolta: Guðjón Valur
Uppáhaldsíþrótt önnur en handbolti: Fótbolti
Hjátrú fyrir leiki: Ekkert svoleiðis.
Besti samherji sem þú hefur leikið með: Bjarni Fritzon
Erfiðasti andstæðingur sem þú hefur leikið gegn: Ivano Balic
Eitthvað að lokum(hvað sem er): Ég vil bara þakka fyrir þann frábæra stuðning sem við höfum fengið á leikjum það sem af er af tímabilinu og vona að sá stuðningur haldist áfram.

Kristján með mark úr hraðaupphlaupi gegn ÍBV