Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hamrarnir halda áfram að safna stigum
8. nóvember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hamrarnir sigruðu KR í gær
Hamrarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu KR á útivelli í gærkvöldi. Þetta var fimmti sigur Hamranna í deildinni og í annað sinn sem þeir leggja KR að velli.
Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Hamranna, Heimir Örn Árnason farinn yfir til Akureyrar en á móti fór Jón Heiðar Sigurðsson yfir til Hamranna og lét heldur betur til sín taka með 8 mörk í gærkvöldi.
Hamrarnir réðu öllu á vellinum í fyrri hálfleik, markvarslan frábær enda höfðu þeir átta marka forystu 7-15 í hálfleik. KR kom reyndar til baka í seinni hálfleik. KR tók tvo leikmenn Hamranna úr umferð í sókninni og gekk illa að koma skotum á KR markið.
KR var með boltann þegar hálf mínúta var til leiksloka, Hamrarnir tóku öflugustu skyttu KR úr umferð og skilaði það sér þar sem Bernharð, markmaður Hamrana varði skotið og tryggði Hömrunum eins marks sigur, 26-27.
Bernharð var dýrmætur á lokasekúndum leiksins
Mörk Hamranna:
Jón Heiðar Sigurðsson 8, Birkir Guðlaugsson 4, Arnór Þorri Þorsteinsson 3, Arnþór Gylfi Finnsson 3, Kristján Már Sigurbjörnsson 3, Patrekur Stefánsson 3, Baldur Halldórsson, Róbert Sigurðsson og Valdimar Þengilsson 1 mark hver.
Í dag eiga Hamrarnir síðan leik við topplið Gróttu á Seltjarnarnesinu.
Á vefnum fimmeinn.is eru viðtöl við þjálfara liðanna.
Elías Már: Ég er bara mjög ánægður með tvö stig
Elías Már Halldórsson, þjálfari Hamrana, var mjög ánægður með að taka tvö stig gegn KR í kvöld. Hann sagði liðið hafa spilað mjög vel en að strákarnir hafi verið klaufar í seinni hálfleiknum og hleypt KR inn í leikinn. Hann sagðist sáttur með að missa forystuna frá sér fyrst þetta slapp í lokin.
Kristján Svan: Ég hélt að menn væru tilbúnir fyrir þennan leik
Kristján Svan Kristjánsson, þjálfari KR, var að vonum svekktur eftir eins marks tap gegn Hömrunum í kvöld. Kristján sagði það klisju að segja að menn hafi ekki mætt til leiks en þannig hafi það þó verið. Hann sagðiað liðið gæti ekki unnið leik ef það ætlaði bara að spila einn hálfleik en taka frí í hinum.
Hér er hægt að
skoða stöðuna í 1. deild karla
.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson