Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Sverre er gríðarlega mikilvægur liðinu
13. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sverre Jakobsson í nærmynd hjá Akureyri.net
Að vanda tekur Þorleifur Ananíasson einn leikmann Akureyrar til rannsóknar á leikdegi liðsins. Leikur dagsins er síðasti heimaleik Akureyrar á árinu en Akureyri tekur á móti Fram í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 15.00 í dag.
Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið, sem eins og staðan er í dag eru hvorugt trygg með sæti í úrslitakeppninni. Það er því við hæfi að hafa mikilvægasta leikmann Akureyri í nærmynd fyrir þennan leik. Sverrir Jakobsson er kominn heim eftir áralanga fjarveru í atvinnumennsku auk þess að hafa einnig leikið fyrir sunnan. Hann hóf sinn feril með KA og var leikmaður liðsins á gullaldarárunum undir stjórn Alla Gísla. Þá hefur hann einnig verið lykilmaður í vörn Íslenska landsliðsins um árabil.
Uppúr stendur þó að hann er algjör topp maður sem frægð og frami hafa ekki haft nokkur áhrif á, algjör fyrirmynd. Líkur eru á að hann muni taka þátt í HM í Katar nú í janúar ef atvinna og aðrar aðstæður leifa. Það yrði þá væntanlega hans síðasta stórmót sem leikmaður, en HSÍ ætti svo sannarlega að reyna að nýta hæfileika hans og reynslu áfram sem varnarþjálfara hjá landsliðinu sem stendur frammi fyrir því að byggja upp varnarleik landsliðsins á næstunni.
Fullt nafn:
Sverre Andreas Jakobsson
F.d. mán ár:
08.02. 1977
Prenthæft gælunafn:
Tyson eða Sveppi
Með hvaða félögum hefur þú leikið:
KA, HK, Fram, UMFA, New England Freeze, VFL Gummersbach og TV Grosswallstadt
Hefur þú leikið í landsliði:
U-18, U21 og ca 170 A-landsleiki
Hver er þín besta staða á vellinum:
6 metra frá okkar markmanni
Hver er/var fyrirmynd þín í handbolta:
Alfreð Gíslason
Uppáhaldsíþrótt önnur en handbolti:
Fótbolti
Hjátrú fyrir leiki:
Mjög takmarkað
Besti samherji sem þú hefur leikið með:
Guðjón Valur
Erfiðasti andstæðingur sem þú hefur leikið gegn:
Rolando Uríos Fonseca
Eitthvað að lokum:
Mig langar að þakka öllum stuðningsmönnum AHF fyrir frábæran stuðning það sem af er tímabili. Það eru forréttindi að eiga svona stuðningsmenn. Bestu þakkir!!!!!!!!!!!
Sverre og Brynjar taka hraustlega á Stefáni Baldvin Framara 11. október 2014
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson