Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Atli er sáttur með að fá frí í deildinni
21. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leik FH og Akureyrar
FH og Akureyri mættust í síðustu umferðinni fyrir jólafrí og eftir sveiflukenndan leik fóru heimamenn með sigur af hólmi, 26-23. Akureyri hefur verið í miklum meiðslavandræðum og eru menn fríinu fegnir. Það hafa oft verið fleiri fjölmiðlamenn heldur en voru á leiknum en Atli Hilmarsson var tekinn í video viðtal hjá bæði mbl.is sem og sport.is.
Guðmundur Hilmarsson á mbl.is tók viðtal við Atla Hilmarsson og Ágúst Elí Björgvinsson markvörð FH.
Safna kröftum og heilsu
Atli Hilmarsson þjálfari Akureyringa segir fríið í deildinni sem fram undan er mjög kærkomið en norðanliðið hefur þurft að glíma við mikil meiðsli. Atli sá sína menn tapa fyrir FH-ingum í Kaplakrika í kvöld. 26:23.
Við vorum klaufar í stöðunni 13:8 yfir. Við vorum þá að klikka úr dauðafærum og rétta boltann í hendurnar á þeim. FH gekk á lagið og skoraði sex mörk í röð. Við erum þunnskipaðir eins og allir sjá en það er engin afsökun. Ég var ánægður með strákana á lokakaflanum en því miður dugði það ekki til, sagði Atli við mbl.is en allt viðtalið má sjá á myndskeiðinu.
Býr meira í liðinu
Ágúst Elí Björgvinsson stóð vaktina vel í FH markinu í kvöld þegar FH-ingar unnu þriggja marka sigur á Akureyringum í Olís-deildinni.
Við byrjuðum leikinn ekkert sérstaklega vel. Við fórum illa með færin og vörnin fór í gang fyrr en á 20. mínútu. Við náðum sem betur fer að laga okkar leik og erum á leið í deildabikarinn sem var eitt af markmiðum okkar. Við vildum hins vegar hafa gert betur á móti toppliðunum. Það býr meira í liðinu og nú þurfum við bara að æfa vel í fríinu og mæta sterkari til leiks eftir það, sagði Ágúst Elí við mbl.is eftir leikinn en hann varði 17 skot í leiknum og þar af tvö vítaköst.
Þorsteinn Haukur Harðarson tók viðtal við Atla Hilmarsson og Ísak Rafnsson leikmann FH fyrir sport.is.
Atli Hilmarsson: Fór með sex leikmenn til læknis fyrir leikinn
Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyringa, var skiljanlega svekktur eftir tapið gegn FH í kvöld. Nú hefst langt frí í deildinni og Atli tekur fríinu fagnandi enda með marga leikmenn á meiðslalistanum.
Ísak Rafnsson: Ég er bara svo ánægður
Ísak Rafnsson, leikmaður FH, var hrikalega ánægður eftir sigurinn gegn Akureyri í Olís-deild karla í kvöld.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson