Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Þrándur og Heimir í viðtölum14. febrúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarUmmæli eftir fimmtudagsleikinn gegn Aftureldingu Á morgun, sunnudag mætast Akureyri og Afturelding á ný í Mosfellsbænum og vonandi verður sá leikur ekki endurtekning á leiknum frá því á fimmtudaginn þar sem Afturelding fór með sigur af hólmi eftir kaflaskiptan leik. Hér á eftir fara viðtöl blaðamanna eftir leik liðanna síðastliðinn fimmtudag. Byrjum á viðtali Guðmundar Marinós Ingvarssonar af visir.is:Heimir Örn: Eitthvað í hausnum á mönnum „Horfum bara á töfluna, 17 mörk. Það er fáránlegt,“ sagði Heimir Örn Árnason aðspurður hvort sóknarleikurinn hafi orðið liðinu að falli í kvöld. „Þeir hefðu getað refsað okkur meira. Við vorum allt of staðir og ekki að gera það sem við erum að gera á æfingum. Það er eitthvað hik í mönnum í þessari sókn. Þetta kemur vonandi. Það er nóg eftir en við þurfum að fara að bæta í sóknina annars er þetta ekki hægt. 22 mörk fengin á sig eiga að skila einu til tveimur stigum. Við erum að spila ágætis vörn en það skilar okkur engu. Þetta er búið að gerast í fyrstu þremur leikjunum eftir áramót. Þetta var eiginlega copy/paste af ÍR og Vals leiknum. Við spilum vel og framan af og svo kemur tíu mínútna kafli þar sem við gjörsamlega klúðrum þessum leikjum á augabragði. Þetta er eitthvað í hausnum á mönnum sem við þurfum að laga,“ sagði Heimir sem segir liðið aðeins taka eitt jákvætt út úr leiknum. Frammistöðu Tomas Olason í markinu. „Hann var frábær. Hann var yndislegur. Ég veit að hans danske familie kom að horfa á þetta hjá honum. Þess vegna var hann alveg óður og varði eins og enginn væri morgundagurinn. Hann var eiginlega það eina jákvæða.“ Á sport.is er vídeóviðtal við Heimi Örn þar sem hann segir lélegan 10 mínútna kafla í seinni hálfleik hafi orðið hans mönnum að falli.VIDEO Áfram með viðtöl Guðmundar Marinós Ingvarssonar af visir.is:Örn Ingi: Spiluðum tudda vörn „Það var kraftur og seigla í okkur í kvöld. Akureyri er kraftalið og við vissum alveg hvað þurfti til. Við þurftum að spila af sömu hörku ef ekki meiri til að vinna,“ sagði Örn Ingi Bjarkason leikstjórnandi Aftureldingar. „Við getum þetta. Við sýndum að við erum hörku lið. Við töluðum um það að þegar það líður að vori þá þurfum við að sýna alvöru leiki og halda dampi. Nú er allt upp á við hjá okkur. Mér fannst við spila tudda vörn. Við náum að brjóta mikið. Náum að blokka og það sem mestu skiptir er að við vorum hreyfanlegir í vörninni. Við höfum verið staðir að undanförnu en núna færðum við allir sem einn og það gerði gæfu muninn varnarlega séð,“ sagði Örn Ingi sem segir það eina neikvæða við leikinn hve illa leikmenn fóru með dauðafærin. „Við vorum svekktir með okkur í hálfleik og getum verið svekktir með okkur eftir leik að hafa ekki nýtt þessi færi. Það fóru nokkur víti og fullt af fyrsta tempói hraðaupphlaupum. Við eigum nóg inni en spiluðum samt vel. Við vissum að ef við myndum halda einbeitingu og aga út allan leikinn þá erum við alltaf á góðu róli. Ef við skilum því þá skilum við yfirleitt alltaf góðum úrslitum,“ sagði Örn Ingi.VIDEO Ívar Benediktsson blaðamaður mbl.is ræddi við Þránd Gíslason Einar Andra, þjálfara Aftureldingar.Þrándur: Strembið á köflum „Þetta var strembið hjá okkur á köflum, ekki síst í sókninni,“ sagði Þrándur Gíslason Roth leikmaður Akureyrar og fyrrverandi leikmaður Aftureldingar eftir 22:17 tap Akureyrarliðsins gegn Aftureldingu á Varmá í kvöld í 18. umferð Olís-deildar karla í handknattleik. „Við eigum erfitt uppdráttar í sóknarleiknum og verðum að bæta okkur á því sviði auk þess að fá fleiri mörk eftir hraðaupphlaup ef við eigum að vinna leiki. Okkur tókst þetta þokkalega á köflum.“ Akureyrarliðið skoraði aðeins fjögur mörk á fyrstu 20 mínútum leiksins og sama markafjölda síðustu 20 mínútunum. Á síðustu 20 mínútunum rann leikurinn úr höndum Akureyringar sem fengu á sig fimm mörk á stuttum kafla rétt fyrir miðjan hálfleikinn þegar staðan breyttist úr 14:14 í 19:14, Aftureldingu í vil. „Mosfellingar hafa meiri breidd en við og um það munar,“ sagði Þrándur sem viðurkennir að lokaþriðjungur deildarkeppninnar geti orðið Akureyrarliðinu erfiður. „Við förum í úrslitakeppnina og verðum tilbúnir þegar hún hefst,“ sagði Þrándur sem segir það hafa verið léttara en hann grunaði að mæta á sinn gamla heimavöll. „Það var ekki jafn vont að mæta gömlum samherjum og mig hafði órað fyrir. Það var gaman að koma hingað og hitta allt gamla draslið og fólkið hér sem eru eins mublur,“ sagði Þrándur Gíslason Roth en nánar er talað við hann á meðfylgjandi myndskeiði.Vildum virkilega vinna „Við vildum virkilega vinna í kvöld og kvitta fyrir leikinn við Akureyringa fyrir norðan skömmu fyrir jól,“ sagði Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar eftir fimm marka öruggan sigur Mosfellinga á Akureyringum í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld. „Það stefndi í að leikurinn yrði jafn til enda þar sem við fórum mjög illa að ráði okkar í mörgum góðum marktækifærum. Við verðum að laga það. Síðan kom frábær kafli hjá okkur rétt fyrir miðjan síðari hálfleik þar sem við skoruðum fimm mörk í röð og þá gerðum við út um leikinn,“ sagði Einar Andri sem var ánægður með varnarleikinn hjá Aftureldingu og frammistöðu Davíðs Svanssonar og Arnar Inga Bjarkasonar í sóknarleiknum. Nánar er rætt við Einar Andra á meðfylgjandi myndskeiði. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook