Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Halldór Jóhann var sáttur með endurkomuna norður31. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarViðtöl og svipmyndir frá leik Akureyrar og FH FH vann sanngjarnan sigur á liði Akureyrar í gær 19-27 eftir að spenna hafði verið í fyrri hálfleiknum. RÚV mætti í Höllina og sýndi aðeins frá leiknum ásamt því að taka Atla Hilmars sem og Akureyrska þjálfara FH, Halldór Jóhann Sigfússon, í viðtöl.VIDEO
Næst kíkjum við á viðtöl Einars Sigtryggssonar , blaðamanns Morgunblaðsins sem ræddi við markvörðinn Bjarka Símonarson sem átti magnaða innkomu í leikinn og einnig Andra Berg Haraldsson, leikmann FH.Bjarki: Sverre er að verða fimmtugur Kom Bjarki í mark Akureyringa í slæmri stöðu og með góðri markvörslu kom hann sínu liði aftur inn í leikinn. Dugði það skammt því leikur Akureyringa hrundi í síðari hálfleiknum. Bjarki var nú ekki beint hress í leikslok en það var stutt í spaugið. „Það skiptir mig engu máli þó að ég hafi varið þessi skot. Við töpuðum leiknum og þótt ég hefði varið 100 skot í tapi þá hefði ég líka verið fúll. Á þessum kafla small vörnin og mér gekk vel. Sóknarleikurinn varð líka beittari og við söxuðum á þá. Síðan var eitthvað allsherjar andleysi sem fylgdi okkur inn í seinni hálfleikinn.“ Telur þú að það hafi haft áhrif á leikmenn að liðið spilaði síðast á laugardag og menn hafi ekki náð að hvílast nóg, sérstaklega í ljósi þess að það eru nokkrir eldri leikmenn í hópnum? „Nei alls ekki. Það er engin afsökun. Öll liðin lenda í þessu einhvern tímann á tímabilinu og takast bara á við það. Sverre er að verða fimmtugur en samt berst hann alltaf eins og ljón og á nóg á tanknum. Þetta var bara ákveðin prófraun. Okkur hafði gengið vel í síðustu leikjum en fórum alveg með þetta í kvöld. Það er bara næsti leikur. Við ætlum að vinna hann“ sagði Bjarki Sím að lokum.Bjarki með flotta vörslu í leiknum
Andri Berg: Duttum í eitthvað ástand Andri Berg Haraldsson hefur verið að gera góða hluti sem sóknarmaður í liði FH í fjarveru sterkra leikmanna liðsins. Sá gamli var flottur gegn Akureyri í kvöld þegar FH vann sannfærandi sigur fyrir norðan í Olís-deild karla. Andri Berg var með þrjú mörk og náði þvílíku flugi þegar hann skoraði eitt þeirra. Hann var að sjálfsögðu sáttur með sigur FH. „Ég er búinn að spila meira í sókninni en ég hef vanist núna eftir áramótin, enda eru alltaf einhverjir meiddir. Nú var Ási ekki með og það er bara skemmtilegt að sjá að maður getur þetta ennþá. Ég nýt þess bara að spila sóknina á meðan ég fæ það og er alltaf klár ef þjálfarinn vill nota mig.“ Nú virtist það ekki há FH-ingum nokkurn skapaðan hlut að tvo lykilmenn vantaði í hópinn hjá þeim í kvöld, þá Ásbjörn Friðriksson og Benedikt Reyni Kristinsson. „Við vorum bara ótrúlega tilbúnir í þennan leik og við erum með fullt af mönnum sem berjast fyrir liðið. Það var þvílíkur kraftur í okkur og á tímabili duttum við í eitthvað ástand þar sem allt gekk upp í vörn og sókn. Við vorum að spila upp á heilmikið í þessum leik og eigum enn séns á þriðja sætinu sem við stefnum á að ná. Það kom aldrei neitt annað til greina en sigur og það sýndi sig bara á okkar leik. Nú er bara að klára dæmið í síðasta leiknum, sem verður gegn ÍBV. Maður veit reyndar aldrei upp á hvað þeir munu bjóða en við hugsum bara um okkur“ sagði hinn mikli öðlingur, Andri Berg að lokum.Andri Berg horfir á eftir Þrándi svífa inn af línunni
Næst liggur leiðin á visir.is þar sem Birgir H. Stefánsson ræðir við þjálfara liðanna, Atla Hilmarsson og Halldór Jóhann Sigfússona (sem Atli reyndar þjálfaði hér á árum áður með KA).
Atli: Í fyrsta sinn sem ég sé mitt lið ekki berjast „Við ætluðum að halda okkur í þeim gír sem við höfum verið í síðustu tveimur leikjum þar sem við höfum verið mjög góðir og við ætluðum að halda því áfram,“ sagði Atli Hilmarsson mjög ósáttur strax eftir leik kvöldsins. „Við byrjuðum mjög illa en fáum svo séns til að komast inn í þetta aftur. Það gekk alveg ágætlega, vorum búnir að ná þessu niður í tvö mörk í hálfleik og síðan niður í eitt. Svo bara gerist eitthvað sem ég kann enga skýringu á. Við erum að gefa boltann frá okkur, við grípum ekki boltann, við erum ekki að taka fráköst og við erum ekki að berjast í vörn. Þeir eru að fá frítt skot hvað eftir annað en samt erum við með einhverja nítján bolta varða, markmennirnir voru að standa sig mjög vel en það sem við buðum upp á hér í seinni hálfleik var algjör skandall. Ótrúlega mikið af glötuðum boltum, lélegum sendingum og lélegum skotum. Það sem mér finnst eiginlega verst er að við vorum ekki einu sinni að berjast um fráköst og það sýnir eiginlega í hvaða standi við vorum í hér í dag. Ef menn eru ekki til í að fórna sér í alla bolta þá bara gengur þetta ekki upp.“ Núna var stutt milli leikja eins og verður í úrslitakeppninni og liðið virkaði mjög þreytt líkamlega. „Við lögðum þetta upp eins og í úrslitakeppni, við eigum núna leik aftur á fimmtudag. Einhvernvegin virðast menn hafa orðið værukærir eftir sigurinn á móti Haukum. Það verður samt ekkert tekið af FH-ingum sem voru mjög góðir hér í dag og börðust eins og ljón. Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé mitt lið ekki berjast, sérstaklega hér í seinni hálfleik þá vantaði alveg fullt upp á það.“Atli tekur leikhlé og reynir að hressa menn við
Halldór Jóhann: Sýndum gríðarlega karlmennsku „Frábær sigur“, sagði Halldór Jóhann þjálfari FH strax eftir leik. „Að koma hingað norður og vinna með átta mörkum með svona fáliðaðan hóp eins og við erum með. Ég á fá orð bara, ég er bara virkilega stoltur. Við sýndum gríðarlega karlmennsku, það er bara þannig. Þetta var í raun mjög svipað leiknum sem fór fram hér 16. október, við vorum með tögl og haldir frá fyrstu mínútu, hann fór minnir mig 20-27 á meðan þessi fór 19-27. Við vorum virkilega góðir varnarlega og einnig sóknarlega, mjög skynsamir og sérstaklega þar sem við vorum svona fáliðaðir.“ Ísak verið frá vegna meiðsla en kemur öflugur inn í leikinn í kvöld. „Ísak er frábær strákur og það hefur verið erfitt að halda honum frá þessu undanfarið. Hann hefur talið sig vera tilbúinn eiginlega bara frá fyrstu viku en við höfum reynt að vera skynsamir með hann. Hann spilaði aðeins lengur en við ætluðum í dag en þetta er Ísak, hann kemur inn í leiki, leggur sig 110% fram og gefur liðinu gríðarlegan styrk.“Halldór Jóhann messar yfir sínum mönnum
Í lokin eru viðtöl sem Siguróli Magni Sigurðsson tók við Sverra Andreas Jakobsson og Halldór Jóhann Sigfússon en þau birtust bæði á fimmeinn.is og sport.is:
Sverre: Sorglegt að bjóða fólkinu okkar upp á svona Sverre sagðist lítið geta gefið upp hvers vegna liðið hefði ekki t.d skorað í margar mínútur. Hann sagði það einfaldlega sorglegt að liðið hafi sýnt svona leik þegar fólki hefði verið boðið frítt í höllina á einhverja skemmtun sem svo hefði alls ekki verið raunin.VIDEO Halldór: Sigur í einum leik gefur ekki sigur í þeim næsta Halldór Jóhann þjálfari FH var sáttur með góðan sigur á erfiðum útivelli og sagði að strákarnir væru að stíga upp í erfiðum meiðslum annarra leikmanna.VIDEO Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook