Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Haffi átti stórleik í markinu og Andri setti 8 mörk8. maí 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarGamli leikurinn: Útisigur á Víking árið 2008 Þó tímabilinu sé lokið hjá Akureyri að þessu sinni þá heldur heimasíðan áfram að koma með nýtt efni. Að þessu sinni er efnið þó í eldra taginu en hér má sjá myndband frá góðum útisigri Akureyrar á liði Víkinga þann 18. október 2008. Bæði lið þurftu á stigunum að halda enda vildu Víkingar ekki missa af lestinni á meðan Akureyri var að berjast á toppi deildarinnar. Hér má sjá öll mörk Akureyrar, nokkrar vörslur hjá Hafþóri og nokkur mörk Víkingsmanna. Sjón er sögu ríkari, endilega kíkið á skemmtilegan leik.VIDEO Akureyri byrjaði leikinn af krafti og hélt forystunni út allan leikinn og vann sannfærandi sigur á endanum, 23-28. Andri Snær Stefánsson var markahæstur í liði Akureyrar með 8 mörk (6 úr vítum), Heiðar Þór Aðalsteinsson, Oddur Gretarsson og Jónatan Þór Magnússon skoruðu allir 4 mörk. Í markinu varði Hafþór Einarsson vel og endaði með 20 skot. Þá er gaman að sjá Heimi Örn Árnason (þáverandi leikmann Vals) í hlutverki spekingsins í hálfleik og að leik loknum. Þá eru Rúnar Sigtryggsson og Jónatan Þór Magnússon gripnir í viðtal eftir sigurinn góða.Umfjöllun og tölfræði úr leiknum má sjá hér. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook