Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Fréttatilkynning frá Akureyri Handboltafélagi - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Breyttur heimavöllur Akureyrar Handboltafélags





9. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fréttatilkynning frá Akureyri Handboltafélagi

Stjórn og aðstandendur Akureyrar Handboltafélags hafa tekið þá ákvörðun að skipta um heimavöll félagsins. Heimaleikir félagsins á komandi tímabili verða leiknir í því sem í daglegu tali er kallað KA heimilið en ýmsir hafa þó viljað kalla Íþróttahús Lundarskóla.

Þessi ákvörðun er einfaldlega tekin með hagsmuni handboltans á Akureyri í huga. Undanfarin tímabil hefur þótt skorta nokkuð upp á að Íþróttahöllina væri sú „gryfja“ sem handboltinn á Akureyri þarfnast. Áhorfendastúkan er stór, áhorfendur sitja dreift og fjarri vellinum þannig að leikmenn eiga erfitt með að skynja nálægð áhorfenda.

Tilgangurinn með þessari breytingu er einmitt að fá miklu meiri nálægð áhorfenda við leikinn þar sem þeir sitja mun nær vellinum auk þess sem áhorfendapallarnir eru nánast allan hringinn í kringum völlinn.
Það er von okkar að þessi breyting verði bæði liðinu og áhorfendum til hagsbóta, nálægðin við leikinn, stemmingin og upplifunin vonandi enn sterkari en áður.

Eins og áður segir þá er þessi ákvörðun tekin með hagsmuni handboltans í huga, líkt og þegar ákveðið var árið 2008 að færa heimavöllinn úr KA heimilinu í Íþróttahöllina. Þá hafði einmitt verið endurnýjað gólfefnið í Höllinni, sett glæsilegt parketgólf sem gjörbreytti aðstæðum leikmanna frá gamla og slitna dúknum sem hafði verið í húsunum báðum.

Fyrir nokkrum árum var gólfefnið í KA húsinu einnig endurnýjað þannig að völlurinn þar er sömuleiðis með ágætum. Akureyri lék einn leik þar á tímabilinu 2013-2014, eftirminnilegur leikur gegn Val sem lauk með dramatísku jafntefli. Akureyri vann þá upp fjögurra marka forskot Valsmanna á síðustu mínútum leiksins og vildu margir meina að stemmingin og nálægð áhorfenda hefði haft mikið um það að segja.
Undanfarin tvö ár hafa Hamrarnir leikið flesta heimaleiki sína í KA húsinu og tókst sömuleiðis að ná upp mikilli stemmingu í húsinu. Uppistaðan í núverandi liði Akureyrar hefur einmitt tekið þátt í Hamraævintýrinu undanfarin ár og þekkir sig því vel húsinu.

Lið Akureyrar mun æfa jöfnum höndum í Íþróttahöllinni og KA húsinu. Handboltavertíðin er einmitt að byrja og nú taka allir höndum saman, skapa stemmingu sem eflir liðsmenn Akureyrar um leið og hún veldur mótherjum okkar kvíða.
Munum að Akureyri Handboltafélag er sameign félaganna KA og Þór og eftir tæplega tíu ára samstarf erum við löngu hætt að láta gamlan félagsríg spilla ánægjunni eða störfum okkar fyrir handboltann.

Við bjóðum alla velkomna á heimaleiki Akureyrar Handboltafélags í vetur.


Akureyri 9. september 2015



Stjórn og leikmenn Akureyrar Handboltafélags
Árni Óðinsson, formaður Þórs
Hrefna G. Torfadóttir, formaður KA

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson