Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Akureyri hársbreidd frá ótrúlegri endurkomu - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hörður var mjög öflugur fyrir Akureyri í Krikanum

28. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri hársbreidd frá ótrúlegri endurkomu

Akureyri mætti FH í Kaplakrika í 5. umferð Olís deildar karla á sunnudaginn. Eftir hreint út sagt skelfilegan fyrri hálfleik var liðið komið 8 mörkum undir en með ótrúlegum karakter kom liðið sér aftur inn í leikinn en örlítið vantaði uppá og FH stóð uppi sem sigurvegari 28-27.


Hér má sjá nokkrar svipmyndir úr leiknum úr fréttatíma RÚV

Mikið hefur verið talað um hve öflugur varnarleikur og markvarsla Akureyrar hefur verið í upphafi móts en eitthvað voru menn ekki á tánum þegar flautað var til leiks í Kaplakrika. FH-ingar voru ekki í neinum vandræðum með að finna opnanir og áttu ótal línusendingar sem gáfu í flestum tilfellum mörk.

Á sama tíma var sóknarleikur Akureyrar í sömu vandræðum og í öðrum leikjum hingað til og verð ég að viðurkenna að spilamennska liðsins í upphafi er eitthvað það versta sem ég hef séð í sögu félagsins. FH leiddi 18-12 þegar flautað var til hálfleiks og okkar menn í raun heppnir að forskotið væri ekki stærra.

Það tók töluverðan tíma áður en Akureyrarliðið skilaði sér aftur inn í salinn fyrir síðari hálfleikinn og sást greinilega á mönnum að menn ætluðu ekki að gefast upp og láta þennan leik verða að einhverri niðurlægingu.

Að vísu byrjaði síðari hálfleikurinn hræðilega þegar Einar Rafn læddi sér inn á völlinn af bekknum og stal boltanum þegar 2 sekúndur voru liðnar af hálfleiknum og FH skoraði fyrstu tvö mörkin, munurinn strax aftur orðinn 8 mörk.

En þá fór liðið að spila frábæran handbolta, menn börðust af miklum krafti og vörnin lokaði algjörlega á sóknarleik FH-inga á sama tíma og Hreiðar Levý fór að verja eins og berserkur í markinu. Á nokkrum mínútum náði liðið að minnka muninn niður í 2 mörk og ennþá tæplega 20 mínútur eftir.

Munurinn hélst í 2-4 mörkum næstu mínúturnar en samt hafði maður á tilfinningunni að Akureyri myndi aftur ná að minnka þetta og gæti vel tekið bæði stigin. Hinsvegar vantaði alltaf herslumuninn uppá til að jafna metin. Munurinn varð nokkrum sinnum 1 mark og fékk liðið nokkur tækifæri á að jafna en því miður þá tókst það aldrei og lokatölur 28-27 FH ívil.

Þessi varnarleikur sem Akureyri var að spila var magnaður og leikmenn FH voru orðnir hræddir við að sækja í uppstilltum sóknarleik. Það sem kláraði leikinn fyrir heimamenn í síðari hálfleiknum voru hraðaupphlaup og seinni bylgja eftir að okkar menn höfðu misst boltann eða eftir vörslur frá Ágúst Elí sem tók nokkur dauðafæri undir lok leiks.

Hörður Másson átti glimrandi leik í sókninni og skoraði alls 7 mörk, en það var hrein unun að sjá baráttuna í honum og áræðnina. Sama hvort hann gerði mistök eða klúðraði skoti, alltaf hélt hann áfram og hann lék lykilhlutverk í því að Akureyri kom sér aftur inn í leikinn.

Ef menn geta haldið áfram að byggja á síðari hálfleiknum þá hef ég engar áhyggjur af framhaldinu, varnarleikurinn og markvarslan er ótrúleg þegar liðið er komið í gírinn og fá lið í deildinni sem ráða við liðið þegar vörnin er komin upp.

Sóknarleikurinn og sóknarmistök hafa verið að kosta liðið í upphafi móts en þessi síðari hálfleikur sýnir að liðið er að ná áttum sóknarlega og nú vonum við bara að menn haldi áfram að stíga upp og bæta sig, áfram Akureyri!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson