Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Akureyri og ÍBV mætast þá tvisvar í desember15. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarLeik ÍBV og Akureyrar frestað fram í desember Akureyri átti að fara til Vestmannaeyja og mæta heimamönnum í 9. umferð Olís-deildar karla. Sú umferð hefst í dag en leikur ÍBV og Akureyrar var fyrirhugaður á laugardaginn. Nú hefur þeim leik verið frestað vegna þátttöku Eyjamanna í Evrópukeppni og er ekki á dagskrá fyrr en 7. desember. Næsti leikur Akureyrar í deildinni er því ekki fyrr en fimmtudaginn 22. október þegar ÍR kemur hingað norður. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook