Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Nú þurfum við að fylla KA-Heimilið!15. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri þarf á þér að halda á fimmtudaginn! VIDEO Við þurfum að fylla KA-Heimilið á fimmtudaginn gott fólk! Lokaleikur Akureyrar fyrir jólafrí er rosalega mikilvægur en með sigri verður liðið í efri hluta deildarinnar fyrir lokaumferðina sem þýðir að liðið fær 5 heimaleiki í staðinn fyrir 4. Leikurinn hefst klukkan 18:00. Strákarnir hafa verið að spila mjög vel að undanförnu og sýnt mikinn karakter að snúa genginu við og klífa upp deildina. Nú skulum við sameinast á pöllunum og sjá til þess að strákarnir sæki enn ein stigin í hús! Handbolti er fjölskylduskemmtun, áfram Akureyri! Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook