Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Viðtöl eftir leik Akureyrar og Hauka - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Tomas og Andri ræddu við blaðamenn eftir leikinn



5. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir leik Akureyrar og Hauka

Einar Sigtryggsson og Ólafur Haukur Tómasson blaðamenn mbl.is og visir.is fylgdust með leik Akureyrar og Hauka á fimmtudaginn og tóku nokkur viðtöl við leikmenn og þjálfara liðanna. Byrjum á viðtölum Einars Sigtryggssonar við markverðina Tomas Olason og Grétar Ara Guðjónsson:

Tomas: Léleg skotnýting

Tomas Olason var af öðrum ólöstuðum langbesti maður Akureyringa í kvöld þegar hans menn steinlágu gegn Haukum í Olís-deildinni í handbolta. Þrátt fyrir að Tomas verði 21 skot, þá tapaði Akureyri leiknum með ellefu marka mun, 28:17.
„Þetta var virkilega svekkjandi og erfið brekka hjá okkur. Við vissum að Haukarnir yrðu sterkir og leikurinn erfiður en lengi vel áttum við séns í þá. Ég verð að hrósa strákunum fyrir að halda áfram út leikinn þótt þetta væri löngu farið,“ sagði Tomas í samtali við mbl.is eftir leikinn.

„Það má segja að léleg skotnýting hafi orðið okkur að falli. Ef menn hafa ekki góða markmenn á æfingum þá verða skotin ekki betri en þetta," greinilega húmor í Tomasi.
„Það verður bara að viðurkenna það að Haukarnir voru sterkari en við. Nú er bara að fara að hugsa um leikinn gagn Víkingum á sunnudaginn. Þeir koma pressulausir í þann leik og ætla pottþétt að gera allt til að vinna. Við hins vegar verðum að fara að bæta við stigum. Það er ekki annað í boði en að vinna Víkinga“ sagði Tomas að skilnaði.


Tomas með eina af fjölmörgum vörslum í leiknum

Grétar Ari: Ég kvarta ekki

Hinn nítján ára markvörður Hauka í Olísdeild karla í handbolta heitir Grétar Ari Guðjónsson. Hann sat lengstum á bekknum í kvöld þegar Haukar unnu Akureyringa 28:17. Horfði hann á svakalegt markvarðaeinvígi þar sem félagi hans, Giedrius Morkunas og Akureyringurinn Tomas Olason voru í frábæru formi.
Ekki gat piltur látið sitt eftir liggja og á þeim tólf mínútum sem hann stóð í markinu náði hann að verja níu skot. En hvernig er að vera markvörður í Haukum?
„Það er mjög gott. Ég er ekki svekktur þótt ég spili ekki mikið. Mér finnst ég fá næg tækifæri og kvarta ekki. Haukarnir eru alvöru félag með mikinn metnað og Giedrius er góður markvörður. Það var flott að horfa á markmennina í þessum leik,“ sagði Grétar Ari um frammistöðu markvarðanna í kvöld.

„Þegar ég kom inn á var ég ekkert að spá neitt í að reyna að gera eins vel og þeir. Þannig er best að koma inn eftir svona svakalegar vörslur, þá gengur allt betur. Ég vill náttúrulega spila meira en hugsa þetta á jákvæðan hátt. Ég er að læra og bæta mig og þarf að hafa eitthvað að stefna á. Það hjálpar mikið að hafa öfluga vörn fyrir framan sig en þeir voru eitthvað farnir að gefa eftir í lokin og maður getur skilið það þótt það sé pirrandi,“ sagði Grétar Ari enn fremur.

En hvað með Haukaliðið. Það virðist massíft og vandséð að það fari ekki alla leið í ár.
„Ég er sammála því. Við erum mjög góðir þegar svo ber undir og allir eru að taka Amino Energy-ið sitt. Svo höfum við dottið á lægra plan og þá verða hlutirnir erfiðari. Við vorum t.d. aldrei sannfærandi í bikarleiknum gegn Val,“ sagði markvörðurinn ungi að lokum.


Grétar Ari í þungum þönkum á miðjum bekk Hauka



Færum okkur þá yfir á visir.is þar sem Ólafur Haukur Tómasson ræðir við Andra Snæ Stefánsson fyrirliða Akureyrar og Gunnar Magnússon þjálfara Hauka:

Andri Snær: Sóknin varð okkur að falli

„Við erum alltof fljótir að gefa eftir. Við erum í basil sóknarlega nær allan leikinn en Haukarnir eru það gott lið að við getum ekki verið að klikka svona mikið af dauðafærum eins og í dag. Við skjótum mjög illa úr góðum færum og þeir eru fljótir að refsa,“ sagði Andri Snær Stefánsson, fyrirliði Akureyrar eftir enn eitt stór tapið gegn Haukum í vetur.

Þrátt fyrir stórt tap þá leit Andri á björtu hliðarnar hjá sínum mönnum og taldi lið sitt hafa spilað góða vörn og markvarslan var fín en það voru vandamál á hinum vallarhelmingnum sem kostuðu þá mikið.
„Við stjórnuðum hraða leiksins vel fyrstu 25 mínúturnar og góð byrjun hjá okkur. Góð vörn og góð markvarsla en það var aðallega nýting á dauðafærum og erfið sókn sem varð okkur að falli.“


Andri Snær búinn að vinna boltann af Haukum

Gunnar Magnússon: Þeir fengu okkur á mjög slæmum tíma!

Það leyndi sér ekki að tapið í bikarúrslitunum gegn Val um síðastliðna helgi situr í Gunnari og leikmönnum hans hjá Haukum. Hann var sáttur með viðbrögð sinna manna eftir vonbrigðin og taldi Akureyringa óheppna að hafa þurft að mæta liðinu á þessum tímapunkti.
„Við gátum ekki beðið eftir að komast á gólfið eftir síðasta föstudag. Akureyringum til varnar þá fá þeir okkur á mjög slæmum tíma hingað því við erum enn svekktir og óánægðir með sjálfa okkur síðan þá. Við vildum komast aftur á gólfið og svara fyrir þetta,“ sagði Gunnar.

Jafnræði var með liðunum lengi vel framan af leiknum en Haukar náðu að byggja upp forskot á síðustu mínútum fyrri hálfleiks. Gunnar taldi þó sína men hafa getað gert betur í fyrri hálfleik og gert út um leikinn fyrr en er mjög sáttur með seinni hálfleikinn.

„Við erum með fimm tækileg klúður í hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik svo við hefðum nánast getað klárað þetta í hálfleik. Við mættum hrikalega grimmir til leiks og vorum mjög góðir í dag. Vörn og markvarsla var mjög góð í dag og sóknin lengi í gang. Sóknin var betri hjá okkur í seinni hálfleik. Heildarbragurinn á liðinu var bara mjög góður.“

Haukar styrkja stöðu sína á toppnum og eru í ágætis málum eins og er. Gunnar er staðráðinn í að missa ekki af þessum titli.
„Að sjálfsögðu ætlum við að klára þetta. Það er næsti leikur og önnur tvö stig, við þurfum fleiri stig og við ætlum að klára þetta,“ sagði Gunnar.


Gunnar þjálfari kátur með gang mála í leiknum

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson