Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Leikir liðanna í vetur hafa verið háspennuleikir
11. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leiknum gegn ÍBV frestað um viku - til 20. mars
Nú er búið að ákveða að fresta leik Akureyrar og ÍBV sem vera átti í KA-Heimilinu sunnudaginn 12. mars um viku. Það þykir útséð að ekki verði ferðaveður á sunnudaginn og þess í stað gert ráð fyrir að leikurinn fari fram
sunnudaginn 20. mars klukkan 16:30
.
Liðin hafa mæst tvisvar í vetur og í báðum leikjum var um sannkallaða háspennu að ræða þar sem báðum leikjum lauk með jafntefli! Liðin mættust hér á Akureyri í síðasta leik ársins 2015 þar sem allt ætlaði að ganga af göflunum í lokin en Eyjamenn jöfnuðu þá andartaki fyrir leikslok.
Allt á suðupunkti undir lok leiks liðanna í desember
Nú er svo sannarlega mikilvægt að okkar menn mæti einbeittir til leiks og berjist fyrir stigunum því það er stutt á milli liða bæði upp á við og niður á við í deildinni.
Eyjamenn eru í 3. sæti Olísdeildarinnar eftir jafntefli í gær við Gróttu á heimsvelli sínum, fjórum stigum á undan Akureyri sem er í 8. sætinu.
Vestmannaeyingar endurheimtu stórskyttuna Agnar Smára Jónsson frá Danmörku núna í janúar en misstu hins vegar Hákon Daða Styrmisson til Hauka í staðinn. Báðir hafa látið til sín taka með sínum nýju liðum, Agnar Smári með 33 mörk í fimm leikjum og Hákon Daði með 20 mörk í jafnmörgum leikjum með Haukum.
En eins og maðurinn sagði þá er næsta víst að bæði lið ætla sér stigin í þessum leik og þar verður barist til þrautar fram á síðustu sekúndu leiksins.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson